Work

Yfirlit yfir sálfélagslegar meðferðir við geðklofa

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Lyfjagjöf er í dag stöðluð meðferð við geðklofa, en þrátt fyrir að hún hafi reynst árangursrík gagnvart sumum einkennum sjúkdómsins hefur hún reynst árangurslítil gagnvart öðrum. Einnig veitir lyfjagjöf, ein og sér, aðeins takmarkaðan árangur sé litið til félagslegrar virkni og lífshamingju. Tilgangur verkefnisins er að skoða hvaða sálfélagslegu meðferðir standa einstaklingum með geðklofa til boða og hvaða meðferð hentar mismunandi sjúklingum. Til að nálgast viðfangsefnið eru sjö útgáfur af sálfélagslegum meðferðum teknar til nánari skoðunar að teknu tilliti til núverandi þekkingar með tilvísun í niðurstöður rannsókna, en ótal rannsóknir hafa verið gerðar á árangri þessara inngripa við geðklofa. Hér verður leitast við að varpa með skýrum hætti ljósi á hvað í mismunandi meðferð felst og hvaða árangur þær hafa borið, meðal annars með tilliti til einkenna sjúkdómsins, endurinnlagna á stofnanir, félagslegrar virkni og lífsgæða. Draga má þá ályktun af skrifunum að sálfélagslegar meðferðir séu árangursrík inngrip sem ættu að haldast í hendur við lyfjagjöf sjúklinganna. Samt sem áður eru þessar meðferðir ólíkar og tilgangur þeirra gagnvart sjúkdómseinkennum misjafn. Í ljósi þess er mikilvægt að hver og einn fái þá meðferð sem honum hentar og er líklegust til að bera árangur. \nLykilorð: Geðklofi, sálfélagslegar meðferðir, geðrofseinkenni og bati.
Source: Skemman
Author: Jón Rúnar Gíslason 1988
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016046358
Cites: 136
Cited by:
Related to: 10