Viðhorf starfsmanna og stjórnenda Landsbankans til frammistöðumats
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Frammistöðustjórnun, einkum og sér í lagi frammistöðumat er eitt mikilvægasta verkefni þeirra sem starfa við mannauðsmál innan skipulagsheilda. Landsbankinn hf. er í dag eitt þeirra fyrirtækja sem framkvæmir árlegt frammistöðumat fyrir alla starfsmenn sína. Frammistöðumatið í bankanum var fyrst innleitt á níunda áratug síðustu aldar en hefur verið í núverandi mynd síðan 2012. \n \nFrammistöðumat getur bæði verið tímafrekt og kostnaðarsamt og því er mikilvægt að vandað sé til verka. Vel framkvæmt frammistöðumat getur skilað góðum árangri fyrir skipulagsheildir en á sama tíma getur illa framkvæmt frammistöðumat haft neikvæð áhrif á árangur skipulagsheilda. \n \nFramkvæmd var viðhorfskönnun í október 2014 þar sem spurningalisti var sendur á alla starfsmenn Landsbankans, bæði almenna starfsmenn og stjórnendur. Svarhlutfall var 60,4% í heild sinni en 58,1% meðal almennra starfsmanna og 82,5% meðal stjórnenda. Markmiðið var að kanna viðhorf þátttakenda til frammistöðumatsins í bankanum og kanna hvort munur væri á viðhorfum starfsmanna og stjórnenda. \n \nHeilt á litið voru þátttakendur ekki nægilega ánægðir með frammistöðumatið. Niðurstöður benda til þess að viðhorf almennra starfsmanna sé ekki eins og best væri á kosið og óbreytt ástand gæti haft neikvæð áhrif á árangur frammistöðumatsins. Viðhorf stjórnenda til frammistöðumatsins er jákvæðara en viðhorf starfsmanna en samt sem áður er þörf á úrbótum, að einhverju leyti. Það er marktækur munur á viðhorfum hópanna þegar kemur að vissum þáttum frammistöðumatsins. Þá ber helst að nefna þætti er varða hlutleysi, þekkingu stjórnenda, endurgjöf og tengsl frammistöðu starfsmanna við launa- og starfsþróun þeirra.
Source: Skemman
Author: Thelma Lind Steingrímsdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016047457
