„Þegar maður á barn, þá þarf maður bara að fara að sækja“. Upplifun mæðra af vellíðan í starfi að loknu fæðingarorlofi
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Vellíðan í starfi er afrakstur heilbrigðrar skipulagsheildar sem einkennist af inngildandi forystu, jákvæðri vinnustaðamenningu, lifandi starfsumhverfi og áhugasömu starfsfólki. Vellíðan í starfi hefur áhrif á lífsánægju einstaklingsins og velgengni skipulagsheildarinnar og því er mikilvægt fyrir alla að skipulagsheild sé heilbrigð og stuðli að vellíðan. Að loknu fæðingarorlofi þegar mæður snúa aftur til starfa tekur við tímabil sem getur reynst þeim krefjandi og haft áhrif á líf og líðan þeirra. Fáar íslenskar rannsóknir hafa þó beint sjónum sínum að vellíðan mæðra í starfi að loknu fæðingarorlofi. Erlendar rannsóknir hafa varpað ljósi á þætti í starfsumhverfinu og bjargráð sem geta haft áhrif á líðan mæðra við endurkomuna. Markmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun mæðra af vellíðan í starfi að loknu fæðingarorlofi út frá hugmyndafræði um uppsprettur heilbrigðis. Til þess að varpa ljósi á upplifun mæðra var rannsóknin framkvæmd með eigindlegum viðtölum við átta mæður sem eignuðust barn á tímabilinu 2020–2022, höfðu lokið fæðingarorlofi og snúið aftur í sitt fyrra starf fyrir að minnsta kosti sex mánuðum síðan. Gögn viðtalanna voru þemagreind sem skilaði fjórum meginþemum. Mæðurnar störfuðu allar á ólíkum starfsvettvangi sem gerir niðurstöðurnar áhugaverðar í því ljósi að upplifun þeirra allra var mjög lík og sömu þættir höfðu áhrif á líðan þeirra. Niðurstöður gefa til kynna að mæðurnar hafi upplifað breytt viðhorf og þarfir í starfi sínu eftir fæðingarorlof. Þeim fannst mikilvægt að hafa fjölbreytt verkefni, að vaxa í starfi, sjá árangur og þannig upplifa tilgang af starfi sínu. Þá fannst mæðrunum einnig mikilvægt að eiga í góðum samskiptum við samstarfsfólk sitt, sem veitti þeim stuðning og skilning. Þær upplifðu einnig hvernig stjórnandinn hafði góð áhrif á líðan þeirra með því að veita skilning, traust og sveigjanleika. Niðurstöður rannsóknarinnar eru framlag til þekkingar um líðan mæðra að loknu fæðingarorlofi og hefur hagnýtt gildi fyrir stjórnendur og starfsfólk til þess að þróa heilbrigt starfsumhverfi, sem endurspeglar þarfir mæðra og vellíðan þeirra í starfi.
Source: Skemman
Author: Rebekka Sveinbjörnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016071779
