Viðhorf leikskólastjórnenda, starfsfólks og foreldra til heilsuhegðunar barna á leikskólum: Lýsandi rannsókn
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Heilsa er samspil líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar vellíðunar og eru ótal hlutir sem hafa áhrif á heilsuna. Heilsuhegðun er blanda af þekkingu, viðhorfum og venjum einstaklings sem stjórnar atferli viðkomandi og hefur þannig bein áhrif á heilsu hans, óháð raunverulegu eða skynjuðu heilsufarsástandi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að viðhorf til heilsuhegðunar hefur áhrif á heilsu viðkomandi og sömuleiðis hefur viðhorf foreldra til heilsuhegðunar áhrif á heilsu og líðan barna. Rannsóknarspurningarnar voru þrjár: (1) hver eru viðhorf leikskólastjórnenda, kennara, annarra starfsmanna og foreldra til heilsutengdra þátta í starfi leikskóla; (2) með hvaða hætti ætti að forgangsraða auknum fjármunum ef rekstrarfé til leikskóla væri aukið; og (3) hvort munur sé á viðhorfum eftir þessum fjórum hópum. Framkvæmd var viðhorfskönnun til heilsuhegðunar á leikskólum og hlutverks leikskóla í því samhengi. 519 einstaklingum var boðin þátttaka en 402 svöruðu spurningalistanum, sem jafngildir 77,5% svarhlutfalli. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að hollustugildi og fjölbreytni þeirrar næringar sem í boði er á leikskólum er sú heilsuhegðun sem talin er vera mikilvægust. Mikilvægi hreyfingar er þó einnig hátt skrifað, þó svo mikilvægi þess að faglærður aðili (íþróttafræðingur) sjái um hreyfinguna sé ekki talið vera mikið. Þá kom skýrt fram í rannsókninni að samkvæmt viðhorfum þátttakenda ætti það ekki að vera í verkahring leikskólanna að bursta tennur barnanna alla morgna. Óyggjandi niðurstöður þess hluta rannsóknarinnar sem kannaði viðhorf til forgangsröðunar fjármagns ef rekstrarfé til leikskóla væri aukið var sú að kjör starfsmanna ættu að vera mest í forgangi. Því eru bætt kjör starfsmanna leikskóla álitin vera sá þáttur sem er best til þess fallinn að auka gæði leikskólastarfs á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Lars Óli Jessen 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016092189
