Work

Útkomur meðgangna og fæðinga á Íslandi hjá konum sem hafa orðið þungaðar eftir glasafrjóvgun á árunum 2019-2021. Samanburður á konum sem fengu meðferð hérlendis og erlendis

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Útkomur meðgangna og fæðinga eftir glasafrjóvgunarmeðferðir hafa aldrei verið kannaðar á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Að gera samanburð á konum sem fengu meðferð hérlendis og erlendis með tilliti til þekktra undirliggjandi áhættuþátta, sjúkdómsgreininga á meðgöngu, útkomu fæðingar og heilsu barnsins. Að kanna hvort meðgöngulengd var áætluð út frá glasafrjóvgunarmeðferð eða ómskoðun, og hvort það hafði áhrif á klíníska ákvarðanatöku um inngrip á meðgöngu og í fæðingu. \n \nEfni og aðferðir: Afturskyggn ferilrannsókn. Rannsóknarþýðið (n=427) var konur sem fæddu eftir glasafrjóvgun á árunum 2019-2021. Tveir hópar voru skilgreindir eftir því hvort meðferðin fór fram erlendis (n=46) eða á Íslandi (n=381). Notast var við lýsandi tölfræði og tölfræðileg marktækni miðaðist við p<0,05. \n \nNiðurstöður: Við samanburð á hópunum erlendis og á Íslandi voru niðurstöðurnar eftirfarandi: meðalaldur 38,3 ár og 34,2 ár (p<0,001), erlent ríkisfang 13 (28,3%) og 28 (7,3%) (p=0,002), gjafaegg 18 (39,1%) og 23 (6,0%) (p<0,001), greining á háþrýstingssjúkdómi og/eða meðgöngusykursýki 31 (67%) og 154 (40,4%) (p<0,001). Ómarktækur munur var á öðrum undirliggjandi áhættuþáttum og útkomum tengdum fæðingu og heilsu barnsins. Meðgöngulengd var áætluð út frá glasafrjóvgun hjá 65%, ómskoðun hjá 25% og hjá 10% var aðferð óljós. Í sex tilvikum gat skipt máli fyrir ákvarðanatöku hvort meðgöngulengd var áætluð út frá glasafrjóvgun miðað við aðrar aðferðir. \n \nÁlyktanir: Konur sem leita meðferðar erlendis eru að meðaltali eldri og hærra hlutfall þeirra þarfnast gjafaeggja eða hefur erlent ríkisfang. Hærra hlutfall sjúkdómsgreininga á meðgöngu gæti skýrst af hærri aldri eða gjafaeggjameðferðum, sem hvoru tveggja eru þekktir áhættuþættir. Ekki er hægt að útiloka að val á aðferð við áætlun meðgöngulengdar hafi áhrif á klíníska ákvarðanatöku.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016093547
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10