Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um viðbrögð heilbrigðisstarfsfólks við grun um ofbeldi í nánum samböndum hjá skjólstæðingum þeirra. Skoðuð var þekking þess, reynsla og viðhorf til ofbeldis í nánum samböndum. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort munur væri milli náms og starfsstéttar annars vegar og viðbragða heilbrigðisstarfsfólks hins vegar við grun um ofbeldi í nánum samböndum. Auk þess var skoðað hvort aðrir þættir gætu haft áhrif á viðbrögðin, til dæmis þekking um ofbeldi í nánum samböndum, reynsla starfsmannsins af málaflokknum eða viðhorf til þátta sem tengjast ofbeldi í nánum samböndum. Til þess að reyna að leggja mat á þessa þætti var lagður spurningalisti fyrir fimm mismunandi starfsstéttir sem sinna heilbrigðisþjónustu, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, ljósmæður, sálfræðinga og sjúkraliða. Þátttakendur í rannsókninni voru 225. Gagnasöfnun fór fram í október 2020. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem gerð var tölfræðileg greining á gögnunum sem safnað var. Niðurstöður sýndu að eftir því sem heilbrigðisstarfsmaðurinn hafði fengið fleiri klukkutíma í fræðslu eða þjálfun, því meiri áhrif hafði það á viðbrögð hans.
Source: Skemman
Author: Alexander Björn Gunnarsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016101242
