Work

Þetta er einungis toppurinn á ísjakanum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Líkt og þruma úr heiðskýru lofti mætti Covid-19 við árslok 2019. Alvarleiki ástandsins var bersýnilegur, þar sem ríkisstjórnir heimsins tóku sig saman og boðuðu til samkomutakmarkana og reglna til að sporna við frekari smitum. Örar samfélagsbreytingar og ný viðmið í samfélögum gerði það að verkum að andlegir örðuleikar urðu helsta aukaverkun nýrra regluverka á tímum Covid-19. Tilkynningar um aukna afbrotatíðni, kynferðisbrot og sjálfsvíg birtust stuttlega eftir fyrstu útgöngubönn, meðal annars í Evrópu, Norður Ameríku og Asíu. Gagnrýni var einnig á tilraunir ríkisstjórna að sporna við smitum með tilteknum forritum, sem mætti litlum vinsældum meðal þegna heimsins. Til að rýna í tíma Covid-19 á Íslandi varðandi afbrota og frávikshegðun voru gögn sótt frá Embætti Ríkislögreglustjóra, Embætti Landlæknis, Hagstofu og Stígamóta. Kenningalegur rammi rannsóknar kemur frá Emile Durkheim, upphafsmanni sjálfsvígs- og afbrotafræðar innan félagsfræðinnar. Sú kenning sem verður lögð áhersla á er siðrof og rannsakað verður hvort að siðrof hafi átt sér stað á tímum Covid-19 á Íslandi. Niðurstöður gefa til kynna að siðrof hafi átt sér stað, þar sem að sjálfsvígstíðni, kynferðisbrot og stór hluti afbrota sem var til skoðaði fjölgaði ört í kjölfar Covid-19 á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Jón Alexander Jónsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016143737
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10