Þjálfun í vatni fyrir eldri einstaklinga : magn, tíðni og ákefð æfinga
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Heimildaritgerð þessari er ætlað að varpa ljósi á hvert magn æfinga, ákefð og tíðni ætti að vera við þjálfun í vatni fyrir heilbrigða eldri einstaklinga, sem vilja viðhalda og auka styrk og þol. Rannsóknir á áhrifum vantsþjálfunar hafa aukist umtalsvert undanfarna áratugi, þá sérstaklega í tengslum við sjúkdóma, en færri rannsóknir hafa verið gerðar á ávinningi vatnsþjálfunar á heilbrigða eldri einstaklinga. Þær rannsóknir sem hér er stuðst við sýna ótvíræðan árangur af slíkri þjálfun. Gefnar eru út ráðleggingar um hreyfingu og margar rannsóknir sýna fram á að þátttaka í skipulagðri þol- og kraftþjálfun, með æskilegri ákefð, þjálfunarmagi og tíðni æfinga, geti spornað við öldrunarferlinu. Þó ber að hafa í huga að þjálfun á þurru landi er að mörgu leyti ólík þjálfun í vatni og þess vegna erfitt að nýta þær ráðleggingar og yfirfæra á þjálfun í vatni. \nSamanburðarrannsókn á áhrifum þjálfunar í vatni og á þurru landi á líkamshreysti miðaldra kvenna leiddi í ljós að þjálfun í vatni hafði mun öflugri áhrif á líkamshreysti. Heimildaritgerð þessi ætti að varpa einhverju ljósi á hvert magn æfinga, ákefð og tíðni ætti að vera til að auka þol, styrk og jafnvægi eldri einstaklinga við þjálfun í vatni.
Source: Skemman
Author: Helga Guðrún Gunnarsdóttir 1955
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016150477
