Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Markmið þessa verkefnis er að hefja þróun á skimunartæki sem skimar fyrir frávikum í málhljóðamyndun og framburði íslenskumælandi barna á aldrinum 2;6–7;11 ára. Skimun er skipuleg leit \nað börnum með margvísleg þroskafræðileg frávik en markmið hennar er að finna þau börn, meta þau nánar og veita þeim viðeigandi íhlutun í kjölfarið. Þegar framburður barna samsvarar ekki því sem vænta \nmætti út frá aldri þeirra og þroska gæti það bent til málhljóðaröskunar. Börn með málhljóðaröskun eru hlutfallslega stór skjólstæðingahópur starfandi talmeinafræðinga hérlendis. Mikilvægt getur reynst að \nveita börnum með slíka röskun snemmtæka íhlutun, sérstaklega þegar skiljanleika tals þeirra er ábótavant eða málhljóðaröskun er alvarleg. Það væri því ákjósanlegt fyrir talmeinafræðinga að geta skimað fyrir framburðarfrávikum barna með beinum hætti. Með því móti væri hægt að nýta greiningaúrræði sem til staðar eru betur með því að beina þeim að þeim börnum sem líklegast er að þarfnist þeirra. Enn er ekki til mælitæki sem talmeinafræðingar nota til að skima fyrir framburðarfrávikum hjá íslenskumælandi börnum á breiðu aldursbili. \nAðferð: Búnar voru til tvær styttri útgáfur af Málhljóðaprófi ÞM (MHP) sem er íslenskt málhljóðapróf sem metur hljóðþróun barna og aðgreinir börn með aldurssvarandi framburð og börn með málhljóðaröskun. \nPrófið er 105 orð í fullri lengd en styttu útgáfurnar voru annars vegar 50 orða listi og hins vegar 40 orða listi. Tvö ólík mæligildi; Hlutfall rétt myndaðra samhljóða (e. Percentage of Consonants Correct - PCC) \nog heildarsamsvörun orða (e. Whole Word Match - WWM) voru notuð til að meta málhljóðamyndun barnanna á hvorum lista. Listarnir voru því í heildina fjórir talsins. Greining var gerð á fyrirliggjandi \ngagnasafni þar sem MHP hafði verið lagt fyrir 465 börn á aldrinum 2;6–7;11 ára (meðalaldur 4;7 ára), þar af voru 433 börn með dæmigerða hljóðþróun og 32 börn með greinda málhljóðaröskun. Fylgni var \nreiknuð fyrir PCC og WWM milli prófsins í heild og hvers og eins lista. Þá var ROC-greining (e. ROC curve analysis) framkvæmd til að fá hugmynd um forspárhæfni listanna fjögurra og bera hana saman. \nNiðurstöður: Helstu niðurstöður voru þær að gott samræmi er á milli allra listanna fjögurra, annars vegar MHP í fullri lengd og hins vegar styttri listanna, óháð mæliaðferð (PCC og WWM) og þvert á hópa \n(börn með og án málhljóðaröskunar). Fylgnin var í öllum tilvikum jákvæð og marktæk (p<0,01, p<0,001) og spannaði frá meðalhárri til hárrar fylgni (r=0,683–0,990). Þegar þátttakendahópar voru aðgreindir \nkom í ljós að fylgni milli MHP í fullri lengd og styttri listanna var ómarktæk og lág með WWM mæligildum hjá börnum með málhljóðaröskun (50 orð: r=0,308, p=0,087; 40 orð: r=0,272, p=0,132). Fylgni hjá \nbörnum með dæmigerðan framburð var hins vegar í öllum tilvikum marktæk, há og jákvæð, óháð lengd lista og mæliaðferð. AUC gildi (þ.e. „area under the ROC curve“) var í öllum tilvikum hátt (óháð lengd \nog mæliaðferð) eða á bilinu 0,961–0,969. \nUmræða og ályktanir: Fram kom marktæk og há fylgni þvert á hópa og mæliaðferðir milli MHP í fullri lengd og styttri útgáfna þess sem sýnir gott samræmi og því er mögulegt að nota báða listana til að \nskima fyrir frávikum í framburði. Þó þarf að rannsaka notkun WWM aðferðarinnar betur með stærra úrtaki barna með málhljóðaraskanir þar sem fylgni var ómarktæk og lág milli MHP í fullri lengd og listanna beggja þegar börn með málhljóðaröskun voru metin saman sem hópur. Ekki kom fram munur á flatarmáli undir ROC-ferlum listanna fjögurra sem bendir til þess að ekki sé mikill munur á forspárhæfni þeirra því þeir hafi allir svipaða getu til að greina á milli barna með og án málhljóðaröskunar. Þó þarf að endurtaka ROC-greiningu þegar gögnum hefur verið safnað frá fleiri börnum með málhljóðaraskanir á öllum aldursbilum. Í kjölfar þess má finna viðeigandi vísunarreglu fyrir hvert og eitt aldursbil og finna sértæki og næmi listanna. Niðurstöður benda til að styttri listarnir endirspegli MHP í fullri lengd og geti, eftir nánari rannsóknir, nýst við skimun á framburðarfrávikum. Styttri listarnir munu því í framtíðinni hafa mikilvægt klínískt vægi fyrir talmeinafræðinga á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Birna Pálsdóttir 1985-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016184854
