,,Þú baðst bara um minna." Hefur samningatækni áhrif á kynbundinn launamun?
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort að kynbundinn launamun megi að einhverju leiti rekja til ólíkrar hegðunar og samningatækni karla og kvenna í launa-, atvinnu- og starfsviðtölum. Hvort að útskýra megi kynbundinn launamun með einhverju öðru en þeim tölulegum upplýsingum sem hafa komið fram í flestum ef ekki öllum launakönnunum sem framkvæmdar hafa verið, bæði hér á landi og erlendis. \nHér er um eigindlega rannsókn að ræða. Tekin voru viðtöl við átta einstaklinga. Tilgangurinn var að kanna þeirra upplifun, reynslu og tilfinningar til málefnisins og hvort að þeir greindu mun á körlum og konum í samningaviðræðum um laun og stöðuveitingar. Viðmælendur starfa allir sem stjórnendur eða millistjórnendur og eru með mikla reynslu af starfsmannamálum. Allir hafa þeir komið að fjölmörgum launaviðræðum, ráðningum, stöðuveitingum og starfmannasamtölum og samið við fjölbreyttan hóp karla og kvenna um kaup og kjör. \nHelstu niðurstöður benda til þess að hegðun kynjanna í launa- og starfsviðtölum sé ekki sú sama. Konur hafa minni áhuga á launum, aðrir þættir en laun skipta þær meira máli og þær fórna ekki fjölskyldulífi fyrir betri störf eða hærri laun. Þá benda niðurstöður jafnframt til að efla þurfi samningatækni kvenna og að konur þurfi að átta sig betur á virði sínu á vinnumarkaði. Samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar má því leiða líkum að því að hluta kynbundins launamunar megi skýra með ólíkri hegðun kynjanna þegar kemur að því að semja um kaup og kjör.
Source: Skemman
Author: Unnur Ýr Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Zero hunger
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016194444
