Work

„Þú ert að gera svo margt á sama tíma“. Stjórnun, stefnumótun og lærdómur almannavarna í tengslum við eldgos

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Hlutverk almannavarna á Íslandi er að gera ráðstafanir um land allt til að koma í veg fyrir eða takmarka að fólk, umhverfi og eignir verði fyrir tjóni af völdum ýmis konar hætta eða náttúruvár, þ.á.m. eldgosavá. Árið 2021 varð fyrsta eldgos á Reykjanesskaga í um 800 ár. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig almannavarnir vinna með eldgosavá með því að greina stefnumiðaða stjórnun og skipulag almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og að kanna hvernig lærdómi og neyðarstjórnun var beitt í tengslum við eldgosin í Geldingadölum árið 2021 og Meradölum árið 2022. Greining rannsóknarinnar byggði á fyrirliggjandi gögnum um skipulag almannavarnadeildar og atburðarás beggja gosanna, og eigindlegum gögnum sem aflað var með sex hálfstöðluðum viðtölum til að fá innsýn í reynslu og vinnubrögð almannavarna. Viðmælendur voru fimm starfsmenn almannavarnadeildar og einn starfsmaður fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra. Niðurstöður sýna að almannavarnadeildin er með fjölbreytt verkefnasvið og treystir á samstarf við ýmsar skipulagsheildir og stofnanir til að sinna margþættu hlutverki sínu. Almannavarnir hafa þróað starfshætti og kerfi til að stuðla að skilvirkni samvinnu í undirbúningi, takmörkunum, viðbrögðum og endurreisn í tengslum við neyðaratburði. Það er áhugi á að læra af reynslunni og safna þekkingu þannig að hún nýtist sem best. Vonir eru um að nýtt rýnifyrirkomulag muni nýtast í þeim tilgangi. Þegar vísbendingar komu upp um mögulegt eldgos á Reykjanesskaga hófu almannavarnir, viðbragðsaðilar, vísindasamfélagið og aðrir hagsmunaaðilar undirbúning sem fólst í áætlunum, greiningum og öðrum ráðstöfunum til að vera eins tilbúin og hægt væri. Upplýsingamiðlun skipti miklu máli fyrir samfélög og skipulagsheildir á skjálfta- og gossvæðum. Meginverkefnið í viðbrögðunum við gosunum var mannfjöldastjórnun við gosstöðvarnar. Eitt það helsta sem almannavarnir vilja draga lærdóm af er að björgunarsveitirnar sinntu gæslu og öðrum verkefnum við gosstöðvarnar í langan tíma sem olli miklu álagi. Covid-19 flækti vinnuna, m.a. vegna hópamyndunar við gosstöðvarnar þegar fjöldatakmarkanir voru í gildi og af því að starfsfólk var orðið þreytt eftir langa törn. Helsta áskorun almannavarna er að þurfa að sinna mörgum mismunandi verkefnum á sama tíma og að þurfa að stökkva til þegar eitthvað kemur upp á sem veldur töfum á viðvarandi starfsemi.
Source: Skemman
Author: Dóra Björg Árnadóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016233830
Cites: 112
Cited by:
Related to: 10