Það eiga allir að sitja við sama borð : það getur samt verið erfitt í framkvæmd : upplifun landsbyggðarljósmæðra af því að nota leiðbeiningar um meðgöngusykursýki
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Vegna aukinnar tíðni meðgöngusykursýki eftir tilkomu nýrri leiðbeininga um skimun, greiningu og meðferð hafa landsbyggðarljósmæður þurft að sinna fleiri konum í áhættumeðgöngum, án þess að áhrif þess á störf þeirra hafi verið metin. \nTilgangur: Að kanna upplifun landsbyggðarljósmæðra, sem vinna fjarri sjúkrahúsum sem bjóða upp á áhættumeðgönguvernd (SAk og LSH) á því að nota leiðbeiningar um meðgöngusykursýki. \nAðferð: Rannsóknin er fyrirbærafræðileg og byggð á Vancouver-skóla aðferðinni. Tekin voru viðtöl við sjö reynslumiklar landsbyggðarljósmæður sem valdar voru með tilgangsúrtaki og tekin alls fjórtán viðtöl við þær og þau þemagreind. \nNiðurstöður: Þrátt fyrir að ljósmæðurnar hafi verið með mikla starfsaldursdreifingu var merkilegur samhljómur í frásögnum þeirra. Yfirþema rannsóknarinnar er Það eiga allir að sitja við sama borð: það getur samt verið erfitt í framkvæmd sem lýsir tvíbentu viðhorfi ljósmæðranna þar sem þær annars vegar lýstu góðri upplifun sinni af því að nota leiðbeiningarnar, þeim fannst þær skýrar, hnitmiðaðar og hjálplegar. Hins vegar ræddu þær allar um hindranir við framkvæmd þeirra sem sjá má í undirþemunum. Fimm undirþemu voru greind: \n1) Ég hugsa að það grípi allar konur: hugleiðingar um aukið öryggi eða ofgreiningar. 2) Ég er bara ein í mínu teymi: reynsla ljósmæðra að hafa ekki bakland á staðnum heldur þurfa að fara fjallabaksleið að hlutunum. 3) Meira álag á konur: reynsla ljósmæðra af auknu andlegu og skipulags álagi hjá konum með meðgöngusykursýki. 4) Þær voru aldrei kynntar: reynsla ljósmæðra á óvissu um túlkun leiðbeininganna. 5) Við erum samt ljósmæður: reynsla ljósmæðra á að samræma ljósmæðrahjartað og gagnreynd vinnubrögð. \nÁlyktun: Auðvelda þarf landsbyggðarljósmæðrum og skjólstæðingum þeirra aðgang að úrræðum svo sem næringarfræðingum og sérfræðingum og skilgreina betur aukið álag sem verður á ljósmæðrum sem sinna þessum hópi.
Source: Skemman
Author: Oddný Ösp Gísladóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Infectious Diseases
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016235308
