Work

„Þetta allt var bara rosa breyting frá grunnskóla“ : Reynsla nemenda af framhaldsskólakerfinu

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á reynslu nemenda á framhaldsskólastigi. Lögð var áhersla á upplifun nemenda af náminu og skólaumhverfinu í þriggja ára kerfinu. Tíminn sem ungmenni verja í félags- og tómstundastarf var einnig skoðaður og var áhersla lögð á að kanna hver ávinningur af starfinu er að mati nemendanna og hver þeirra reynsla er af samþættingu þess við námið í þriggja ára kerfinu. Tekin voru hálfstöðluð opin viðtöl við átta framhaldsskólanemendur úr tveimur bekkjarskólum sem áttu það allir sameiginlegt að vera á öðru ári og virkir þátttakendur í félags- og tómstundastarfi samhliða námi. Meginniðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ungmennin upplifðu mikil viðbrigði við að skipta um skólastig. Viðbrigðin tengdust aðallega miklu námsálagi og nýjum skólafélögum. Þeim fannst leitt hvað það voru fá tækifæri til að vera skapandi í náminu og hversu lítil áhrif nemendur geta haft á fyrirkomulag skólans. Breytingunum og námsálaginu fylgdi streita og jafnvel kvíði hjá mörgum ungmennunum. Þrátt fyrir það átti meirihlutinn það sameiginlegt að finnast þau tilheyra skólanum, passa vel inn í umhverfið og upplifa sig sem hluta af hópnum. Þegar stuðningur við ungmennin í tengslum við hvatningu og skuldbindingu þeirra til náms og skóla var skoðaður kom í ljós að stuðningur foreldra, samstaða samnemenda og góð samskipti við kennara skólans höfðu áhrif á áhuga þeirra á náminu og vellíðan. Mikil vinna, gott skipulag og forgangsröðun var grunnurinn að því að ungmennin gátu samþætt nám-, félags- og tómstundastarf. Að mati ungmennanna var ávinningurinn af starfinu megin ástæðan fyrir því að þau lögðu alla þessa vinnu á sig. Allir viðmælendur nema einn voru á þeirri skoðun að þeir væru ekki hlynntir styttingunni og/eða að framkvæmdin við styttinguna hefði verið illa unnin. Auk þess fannst þeim að þeirra skoðanir mættu heyrast oftar.
Source: Skemman
Author: Katrín Vignisdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016254933
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10