Work

Þetta er svona yfir og allt um kring : viðhorf og reynsla kennara af gildi og hlutverki lífsleiknikennslu og sálfélagslegri líðan barna og unglinga

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að skoða viðhorf og reynslu grunn- og framhaldsskólakennara af kvíða barna og unglinga, og að kanna hvernig skólar eru að koma til móts við þennan vanda sem og þarfir nemenda, meðal annars með félagsfærniþjálfun. Sérstök áhersla var lögð á að kanna hvernig kennarar meta stöðuna og hvaða leiðir þeir telja bestar til þess að efla nemendur sem eiga við þennan vanda að stríða. Ákveðið var að beina sjónum sérstaklega að lífsleiknikennslu vegna þess að námsgreinin á í grunninn að sinna því hlutverki að styðja við nemendur. Rætt var við átta viðmælendur sem áttu það sameiginlegt að hafa séð um lífsleiknikennslu í grunn- og framhaldsskólum. Notast var við eigindlega aðferðafræði með notkun viðtalsramma, með hálf stöðluðum spurningum, til að safna upplýsingum. Við úrvinnslu gagna var framkvæmd innihaldsgreining á viðtölunum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gáfu vísbendingar um að gera þyrfti lífsleiknikennslu mun markvissari og árangursríkari en hún er í dag. Kvíði barna og unglinga virðist vera að aukast og nauðsynlegt er að veita þeim heildrænni stuðning innan skólanna. Niðurstöður benda einnig til þess að aukin áhersla á samskipta- og félagsfærniþjálfun geti hjálpað nemendum að takast á við auknar kröfur í samfélaginu og gefið þeim haldgóðan grunn til þess að takast á við ýmiss konar vandamál.
Source: Skemman
Author: Kristbjörg Ósk Svavarsdóttir 1986
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016271223
Cites: 56
Cited by:
Related to: 10