„Þær vænta þess ekkert endilega að þær séu frumkvöðlar.“ Aukin þátttaka kvenna í frumkvöðlastarfi
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð segir frá rannsókn sem gerð var á frumkvöðlastarfi kvenna. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða frumkvöðlastarf kvenna út frá kenningum um starfsferilsþróun kvenna. Reynt verður að varpa ljósi á hvernig hægt er að stuðla að auknu frumkvöðlastarfi kvenna í gegnum menntun og náms- og starfsráðgjöf. Rannsóknin byggir á viðtölum við sjö einstaklinga sem koma að vinnu með kvenfrumkvöðlum á einn eða annan hátt. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir aukinn áhuga kvenna á frumkvöðlastarfi þá þurfi að huga sérstaklega að þeim. Þær láta frekar hindranir eins og trú á eigin getu stöðva sig í að fara í frumkvöðlastarf og þær sjá ekki fyrir sér að þær séu frumkvöðlar. Í gegnum nám í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt og ekki síst náms- og starfsráðgjöf má vinna með þessar hugmyndir og auka hlutfall þeirra kvenna sem kjósa að skapa sér sinn eigin starfsferil. Fjölmargt í samfélaginu bendir til þess að frumkvöðlastarf sé framtíðin og því mikilvægt fyrir náms- og starfsráðgjafa sem starfa í ráðgjöf að átta sig á mikilvægi frumkvöðlastarfs í framtíðinni og hafa í huga þá þætti sem standa í vegi fyrir einstaklingum og þá sérstaklega stúlkum þar sem þær standa hallari fæti á þessum starfsvettvangi.
Source: Skemman
Author: Helga Rúna Þorsteinsdóttir 1982
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016314698
