,,Því meira sem maður er hvattur áfram, því betur stend ég mig í starfinu“ Upplifa starfsmenn að hvatning hafi áhrif á frammistöðu?
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessa rannsóknarverkefnis, til meistaraprófs í mannauðsstjórnun, var að rannsaka hvatningu og umbun í starfi og kanna hvort starfsmenn upplifi að hvatning hafi áhrif á frammistöðu í starfi. Rannsóknin var byggð á eigindlegri rannsókn í formi viðtala. Tekin voru tíu viðtöl, eitt við gæðastjóra fyrirtækisins sem um ræðir og eitt við framleiðslustjóra þess í þeim tilgangi að fá betri innsýn í störf starfsmanna og hvatningarkerfið sem stuðst er við í deild skipulagsheildarinnar. Tekin voru fjögur viðtöl við núverandi starfsmenn deildarinnar og fjögur viðtöl við fyrrum starfsmenn sömu deildar. Viðtölin voru tekin í október og nóvember 2018 og voru viðmælendur á aldrinum 19-55 ára, þrjár konur og fimm karlar. Deildin sem rannsökuð var er eina deildin innan skipulagsheildarinnar sem styðst við hvatningarkerfi. Við framkvæmd rannsóknarinnar notaðist rannsakandi við hálfopin og opin viðtöl og hentugleikaúrtak. Ritgerðinni var skipt upp í tvo hluta, fræðilegan hluta og rannsóknarhluta. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að bæði fyrrum starfsmenn og núverandi starfsmenn telja flestir að bæði innri og ytri hvatning þurfi að vera til staðar til að ná fram bættri frammistöðu starfsmanna. Niðurstöður leiða í ljós að bæði innri og ytri hvatning sé til staðar innan deildarinnar sem var rannsökuð. \n Rannsóknin sýnir fram á að hvatningarkerfið sem notað er sé nauðsynlegt fyrir starfsmenn deildarinnar. Viðmælendur eru allir sammála því að þeir hefðu afbragðs yfirmann sem hvetti þá áfram og sé duglegur að hrósa þeim fyrir vel unnin störf. Einnig kemur fram að yfirmaðurinn sé duglegur að leiðbeina starfsmönnum á jákvæðan hátt um það sem betur mætti fara í starfi. \nLykilorð: Innri og ytri hvatning, hvatningarkerfi.
Source: Skemman
Author: Tara Lind Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: employee motivation, job satisfaction, employee performance, career development, employee turnover, human resource management, organizational culture, leadership, organizational structure, organizational change, organizational communication, change management, organizational development, organizational values, organizational goals
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016316539
