„Það er svo margt sem gleður í þessu starfi” Upplifun og reynsla grunnskólakennara af vellíðan í starfi og áhrifaþáttum í vinnuumhverfi
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Margt í vinnuumhverfi kennara hefur áhrif á vellíðan þeirra í starfi. Fyrri rannsóknir benda til þess að þættir sem hafa áhrif á líðan kennara séu einkum álag í starfi, sveigjanleiki, félagslegur stuðningur og góð vinnustaðamenning. Markmið rannsóknarinnar er að öðlast innsýn í upplifun grunnskólakennara af vellíðan í starfi og reynslu þeirra af þáttum í vinnuumhverfi sem hafa áhrif á líðan þeirra. Rannsóknarspurningin er: „Hver er upplifun og reynsla grunnskólakennara af þáttum í vinnuumhverfi sem þeir telja að hafi áhrif á vellíðan þeirra í starfi?“ Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við átta grunnskólakennara sem starfa í sama grunnskólanum. Gögn voru greind með þemagreiningu þar sem fram komu þrjú meginþemu. \nNiðurstöður benda til þess að kennurum líði almennt vel í starfi en aukið álag og miklar kröfur valda streitu og vanlíðan. Helstu bjargráð sem nýtast kennurunum er að finna í sveigjanleika í starfinu, samvinnu meðal teyma, starfsþróun og upplýsingagjöf. Að auki höfðu góð samskipti og stuðningur frá stjórnendum og samstarfsfólki góð áhrif á líðan þeirra. Kennurum leið vel þegar skólastjórnendur voru sýnilegir og þeim var mætt með skilningi og trausti. Aukið álag og miklar kröfur leiða til þess að brýn þörf er á frekari úrræðum sem styðja við vellíðan kennara og geta haft verndandi áhrif gegn álagi og kulnun í starfi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru framlag til stöðu þekkingar á vellíðan grunnskólakennara og vinnuumhverfi þeirra. Þær gefa vísbendingar um gagnleg bjargráð í vinnuumhverfi kennara og leiðir til að auka og hlúa að vellíðan þeirra í starfi. Niðurstöður rannsóknarinnar geta haft hagnýtt gildi fyrir skólastjórnendur og kennara þegar kemur að vellíðan kennara í starfi og hvernig styðja á heilbrigt vinnuumhverfi. \n \n \nLykilhugtök: Vellíðan í starfi, vinnuumhverfi, grunnskólakennarar, bjargráð, stuðningur.
Source: Skemman
Author: Elva Björg Jóhannsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: primary school teachers, job satisfaction, work environment, teacher well-being, occupational stress, teacher professional development, work-life balance, teacher burnout, teacher motivation, teacher self-efficacy, teacher career development, teacher professional values, teacher ethics, teacher professional responsibility
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016358246
