Work

„Þetta er miklu skemmtilegra og ýtir undir áhuga“ : tölvuleikir sem kennslugagn í sögukennslu á framhaldsskólastigi

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessarar ritgerðar er viðhorf og reynsla nemenda og kennara af tölvuleikjum í sögukennslu. Í ritgerðinni verður leitast við að sýna fram á námsgildi tölvuleikja í kennslu og þá sérstaklega í sögukennslu á framhaldsskólastigi. Tölvuleikir eru orðnir hluti af samtímamenningunni þar sem sífellt fleiri nemendur spila tölvuleiki sér til skemmtunar. Tölvuleikir gætu því verið vænleg leið til þess að auka áhuga nemenda í námi. Rannsóknir hafa sýnt að tölvuleikir bjóða upp á fjölbreytt nám og styrkja 21. aldar færni sem virðist vera mikilvæg færni fyrir komandi kynslóðir. Gerð verður grein fyrir kennslufræðilegum rannsóknum á gagnsemi tölvuleikja í almennri kennslu. Sérstaklega verður fjallað um rannsóknir sem snúa að tölvuleikjum sem kennslugagni í sögukennslu \nRannsóknarspurningarnar eru tvær: 1. Telja nemendur að þeir læri öðruvísi með tölvuleikjum en með hefðbundnum aðferðum, þar sem kennslubók og skrifleg verkefni eru lögð til grundvallar? 2. Hvert er námsgildi tölvuleikja í sögukennslu á framhaldsskólastigi? Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna möguleika sem tölvuleikir gætu veitt til að auka fjölbreytni kennsluaðferða í sögukennslu og hvort þeir höfði til nemenda með tilliti til áhugasviðs þeirra. Í þessari rannsókn var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru viðtöl við framhaldsskólakennara sem hafa reynslu af sögukennslu og noktun tölvuleikja sem kennslugagn. Einnig var rætt við níu nemendur á framhaldsskólastigi. \nMegin niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að tölvuleikir bjóða upp á nám sem fæst ekki með notkun kennslubóka eða verkefnavinnu. Í því felst meðal annars að nemendur eiga auðveldara með að setja sig í og takast á við aðstæður með notkun tölvuleikja og ná því að tengjast viðfangsefni námsins betur.
Source: Skemman
Author: Linda Ösp Grétarsdóttir 1987
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016561549
Cites: 47
Cited by: 1
Related to: 10