Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir hafa sýnt að algengi einhverfu hefur farið jafnt og þétt hækkandi um allan heim frá því upp úr 1990. Síðasta íslenska rannsóknin sýndi algengið 1,2% en þá voru Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (GRR) og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) einu stofnanirnar á Íslandi sem greindu börn með einhverfu. Markmið þessarar rannsóknar var að halda áfram að fylgjast með algengi einhverfu á Íslandi í tengslum við evrópskt samstarfsverkefni (ASDEU) byggt á aldurshópunum 7 til 9 ára. Að auki var skoðaður aldur við greiningu, niðurstöður þroskaprófa, tíðni þroskahömlunar og ýmsar breytur sem gætu verið mælikvarði á gæði greininga. Rannsóknin var aftursýn þversniðsrannsókn og var stuðst við upplýsingasöfnun úr sjúkraskrám þátttakenda. Þátttakendur voru 295 börn fædd á árunum 2006 til 2008 og voru greind með einhverfu á GRR eða BUGL fyrir árslok 2015. Niðurstöður sýndu að algengi allra raskana á einhverfurófi var um 2,2% og hefur því aukist verulega á skömmum tíma. Aukningin kemur fyrst og fremst frá drengjum sem greinast með bernskueinhverfu (ICD-10; F84.0) og með vitsmunaþroska nálægt meðallagi. Meirihluti barnanna (77,3%) fékk sína fyrstu greiningu á leikskólaaldri en samt voru mörg börn að greinast seint (eftir 6 ára) þrátt fyrir verulega skertan þroska. ADI-R greiningarviðtalið var notað mun sjaldnar á GRR en áður. Ýmsar skýringar á þessari aukningu á algengi einhverfu eru ræddar. Ályktað er um þörfina á að þróa nýja aðferðafræði við gagnasöfnun til að halda áfram að fylgjast með algengi einhverfu á Íslandi og mikilvægi klínískra leiðbeininga til að samræma greiningu á einhverfu á milli stofnana.
Source: Skemman
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017063648
