Work

„Af sárri reynslu vitið vex“ Upplifun íslenskra karlmanna í samningagerð

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun íslenskra karlmanna í samningagerð, einkum með hliðsjón af því hvort þeir vinni með samkeppnismiðaðar samningaviðræður (e. distributive negotiation) eða samstarfsmiðaðar samningaviðræður (e. integrative negotiation). Reynt var að varpa skýrara ljósi staðalímyndina kynjanna og á hvaða hátt hún litar samningaviðræður karla almennt. Einnig var reynt að varpa ljósi á viðbrögð þeirra við ólíkum aðstæðum sem upp komu í samningaviðræðum og með hvaða hætti þeir bregðast við þessum ólíku aðstæðum. \n Rannsóknin var unnin á grunni eigindlegrar aðferðarfræði þar sem tekin voru tíu viðtöl við samningamenn hjá ríkisstofnunum og verkfræðistofum. Voru viðtölin greind á grunni fyrirbærafræðinnar og mátti greina fimm meginþemu og eitt undirþema. Menntun, bakgrunnur og reynsla þessara einstaklinga er nokkuð áþekk. Helmingur þátttakenda er starfandi hjá hinu opinbera og helmingur þátttakenda er starfandi á einkamarkaði, en allir eiga það sameiginlegt að vera í lykilhlutverki í samningagerð fyrir sína skipulagseiningu. \n Meginniðurstöður rannsóknarinnar undirstrika mikilvægi þess að samningamenn mæti undirbúnir til leiks og geri sér grein fyrir þeirri aðferðarfræði sem samningamenn almennt beita í samningagerð. Viðmælendur, sem allir voru íslenskir karlmenn voru á einu máli um að þeir sjálfir beittu samvinnumiðuðum aðferðum en töldu ekki rétt að draga þá ályktun að þannig væri þessu farið almennt með íslenska karlmenn í samningagerð. Staðalímynd spilar ákveðið hlutverk í þeirra samningagerð og einnig höfðu þátttakendur á orði að óöryggi samningamanna hefði mikla vigt í samningagerð og litaði mjög framkomu þeirra sem í hlut ættu. Skortur á þjálfun í samningagerð var eitt af því sem allir aðilar höfðu orð á og töldu mjög mikilvægt að þeirra skipulagsheild tæki fastari tökum. \nLykilorð: Samkeppnismiðuð aðferðarfræði, samvinnumiðuð aðferðarfræði, staðalímynd, sjálfstraust.
Source: Skemman
Author: Kristján Helgi Theodórsson 1967
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017088062
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10