Áhrif umbunar á sjónræna eftirtekt og minni. Hefur umbun áhrif á rýmd sjónræns skammtímaminnis?
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif umbunar í formi peninga á eftirtekt og minni. Sjónræn athygli hefur mikið verið rannsökuð og hefur komið í ljós að oft tökum við ekki eftir áreitum sem birtast beint fyrir framan okkur ef athyglinni er beint annað. Athyglin velur úr þau áreiti sem síðan eru geymd í stutta stund í skammtímaminni sem rúmar takmarkað magn upplýsinga. Mismunandi kenningar eru um eðli þessarar takmörkunar, hvort takmörkunin felist í fjölda áreita sem rúmast eða sé auðlind sem dreifist milli áreita í minni. Í þessari tilraun var notast við sjónleitarverkefni til að kanna áhrif umbunar á skammtímaminni sjónar. Þátttakendur áttu að greina bókstafi sem birtust í skamma stund. Þeir voru í litum sem tengdust hárri, lágri eða neikvæðri fjárhagslegri umbun. Tilgátan var sú að hlutfall réttra svara væri hærra fyrir áreiti sem tengdust miklu verðmæti heldur en fyrir áreiti sem tengdust litlu verðmæti. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að tilgátan stóðst ekki, enginn munur var á hlutfalli réttra svara eftir mismunandi verðmætaflokkum. Því er ekki hægt að álykta svo að umbun hafi haft áhrif á rýmd skammtímaminnis.
Source: Skemman
Author: Einar Ragnarsson 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Cognitive Neuroscience
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017104478
