Work

„Alltaf að efast“ Upplifun handknattleikskvenna á samningastöðu þeirra við íþróttafélög

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Færni í samningaviðræðum hefur þróast mikið síðustu áratugi og lagðar hafa verið fram fjölda kenninga um það hvernig sé best að hegða sér við samningsborðið. Margar rannsóknir hafa verið lagðar fram um það hvernig konur eiga það til með að hegða sér í samningaviðræðum. \n\tMegintilgangur þessarar ritgerðar var að svara eftirfarandi tveim rannsóknarspurningum: Hvernig nálgast íslenskar handknattleikskonur samningaviðræður við sín íþróttafélög? Hvernig upplifa íslenskar handknattleikskonur samningstöðu sína gagnvart íþróttafélögum? Lítil sem engin umboðsmennska tíðkast hjá íslenskum handknattleikskonum hér á landi og liggur því öll ábyrgð í þeirra höndum. Því var tilvalið að skoða samningsstöðu íslenskra handknattleikskvenna í dag gagnvart íslenskum íþróttafélögum. \n\tNotast var við fyrirbærafræðilega aðferð í þeim tilgangi að skyggnast dýpra inn í upplifun handknattleikskvenna hér á landi. Þessi aðferð var talin henta best fyrir þessa rannsókn til að öðlast dýpri skilning á reynslu viðmælenda. Einnig til að skilja betur upplifun þeirra á fyrirbærinu svo möguleiki væri til staðar að svara rannsóknarspurningunum. Tekin voru ellefu djúpviðtöl við íslenskar handknattleikskonur sem spila á Íslandi. Flest allar voru með töluverða reynslu og höfðu því tekið þátt í mörgum samningaviðræðum. \n\tHelstu niðurstöður þessarar rannsóknar leiddu í ljós að viðmælendur hafa ekki mikið tækifæri til að undirbúa sig og fara ekki markvisst eftir markmiðum sínum. Viðmælendur hugsa mjög heildrænt þegar kemur að því að semja við sín íþróttafélög. Einnig koma viðmælendur aldrei með fyrsta boð, heldur leyfa íþróttafélaginu að kasta út akkerinu þar sem hegðun þeirra einkenndist af ákveðnu öryggisleysi, frammistöðukvíða og meðvirkni. Að lokum upplifðu viðmælendur meiri þægindi og öryggi þegar samið var við konu. Viðmælendur féllu skýrt að birtingamyndum kynjamismunar sem ríkir almennt í samfélaginu þar sem konur bera gjarnan skarðan hlut frá borði.
Source: Skemman
Author: Steinunn Björnsdóttir 1991
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017138793
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10