Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Geðheilsa er einn af grunnþáttum þess að einstaklingur eigi möguleika á því að lifa eðlilegu og sómasamlegu lífi, því án hennar yrðu lífsgæði ásamt vellíðan einstaklinga verulega skert. Kvíði og þunglyndi eru samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO) algengustu geðsjúkdómar í heiminum en aukin þéttbýlismyndun á alheimsvísu er ein leið til þess að skora geðheilsu einstaklinga á hólm. Rannsóknir benda til þess að græn svæði, blá svæði og götugróður hafi jákvæð áhrif á almenna velferð einstaklinga, þar með talið kvíða og þunglyndi. Sé unnið markvisst að því að þétta byggð má gefa sér að verið sé að skapa kröfuhart umhverfi á einstaklinga og því kann að fylgja neikvæð áhrif. Niðurstöður rannsókna sýna að þéttbýlisþróun heimsins ýti undir þróun þunglyndis og kvíða ef litið er til náttúrulegra svæða og náttúrulegra áreita, hæð og þéttleika bygginga, mannmergðar og hávaðamengunar. Af því sögðu er markmið þessa verkefnis að rýna í samband og áhrif þéttari byggðar á kvíða og þunglyndi og kanna hvort aukinn þéttleiki byggðar ýti undir þróun sjúkdómana og hvort tekið sé nægjanlegt tillit til þeirra áhrifa sem þéttbýlismyndun kann að hafa á andlega líðan fólks.
Source: Skemman
Author: Stefán Karel Valdimarsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Urban Green Space and Health
Subfield: Urban Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017219737
