Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Rannsókn þessi var unnin af tveimur nemendum í Háskólanum í Reykjavík. Rannsóknin var unnin á tímabilinu 24 febrúar til 13 apríl 2015. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 41 leikmenn Stjörnunnar og var þeim skipt niður í tvo hópa, tilraunahóp með 19 leikmönnum og samanburðarhóp með 22 leikmönnum. Í tilraunahópi voru 12 leikmenn sem tóku þátt í báðum mælingum og var meðalaldur þeirra 21,8 ár. Í samanburðarhópi voru 14 leikmenn sem tóku þátt í báðum mælingum og var meðalaldur þeirra 17,9 ár. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða áhrif inngrip með sprengikraftsæfingum hefðu á stökkhæð og spretthraða leikmanna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ekki er marktækur munur innan hópa á spretthraða og stökkhæð leikmanna. Einnig kom fram marktækur munur á milli hópa í spretthraða en ekki stökkhæð.
Source: Skemman
Authors: Garðar Jóhannsson, Hörður Árnason
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017248494
