Work

Áhugahvetjandi samtöl fangavarða við brotamenn. Samfélagslegur ávinningur

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi gildir sem lokaverkefni til BA-gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Viðfangsefni ritgerðarinnar snýr að áhugahvetjandi samtölum (e. Motivational interviewing) í umhverfi réttarvörslukerfisins og því hvernig fangaverðir geta notast við slíka nálgun með föngum í þeim tilgangi að vekja með þeim hvata til að gera breytingar til batnaðar í eigin lífi. Einnig verður komið inn á æskilegar leiðir fangavörðum til handa við beitingu aðferðarinnar og bent verður á atriði sem vert er að hafa í huga við innleiðingu nálgunarinnar í stofnanir innan réttarvörslukerfisins. \nSýnt hefur verið fram á að nálgunin um áhugahvetjandi samtöl hentar einkar vel í endurhæfingarferli einstaklinga sem afplána refsidóma og hafa þær stofnanir sem séð hafa starfsmönnum sínum fyrir þjálfun í beitingu nálgunarinnar náð markverðum heildarárangri. \nÞeir brotamenn sem hljóta áhugahvetjandi samtalsmeðferð veitta af fangavörðum eru líklegri til að breyta eigin hegðun til batnaðar og láta af brotastarfsemi, verða frekar nýtir samfélagsþegnar að afplánun lokinni og eiga þar af leiðandi síður á hættu á endurkomu í fangelsi. Einnig getur notkun nálgunarinnar innan réttarvörslukerfisins dregið úr tilfinningalegri örmögnun eða kulnun í starfi fangavarða. \nMiðað við starfslýsingu fangavarða í fangelsunum að Litla-Hrauni og Sogni ásamt þeim lögum og reglugerðum er snúa að starfi fangavarða hér á landi má ætla að nálgunin sé vel til þess fallin að innleiða hana í íslenskt fangelsiskerfi.
Source: Skemman
Author: Karen Dröfn Hafþórsdóttir 1984
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017252074
Cites: 57
Cited by:
Related to: 10