Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna reynslu kennara af starfi með börnum sem hafa orðið fyrir áföllum í þeim tilgangi að varpa ljósi á þekkingu þeirra og reynslu. Áætlanir stjórnvalda í menntamálum eru í auknu mæli farnar að beinast að sálfélagslegri og líkamlegri líðan nemenda. Vaknaði því upp áhugi á því að kanna hvaða reynslu og þekkingu kennarar búa yfir þegar kemur að áföllum í lífi nemenda og hvort nám kennara veiti nægilegan undirbúning til þess að starfa með börnum sem hafa orðið fyrir áföllum. Sjónum er fyrst og fremst beint að upplifun kennara af starfi með börnum sem orðið hafa fyrir áföllum, hvaða þekkingu grunnmenntun þeirra veitir þeim og hvaða stuðning og þekkingu þeir hafa að leita í þegar unnið er með börnum sem hafa orðið fyrir áföllum. Rannsóknin er eigindleg rannsókn og voru tekin viðtöl við sjö starfandi kennara í tveimur grunnskólum í bæjarfélagi utan höfuðborgasvæðisins. Viðtölin voru tekin á tímabilinu 26. September til 30. Október árið 2023. \nNiðurstöður rannsóknarinnar veita ákveðna innsýn í störf kennara með börnum sem hafa orðið fyrir áföllum og þá þekkingu sem að þeir búa yfir um áföll og birtingamyndir áfalla. Þá veita niðurstöður jafnframt innsýn í hvaða stuðning kennarar fá þegar þeir starfa með börnum sem hafa upplifað áföll. Niðurstöður benda einnig til að starfsreynsla kennara skiptir máli við að þekkja merki og birtingarmyndir áfalla hjá börnum, þeir sem hafa lengri starfsreynslu búa yfir meiri þekkingu en þeir sem hafa starfað skemur. Að auki kemur fram að undirbúningur í kennaranámi sé ekki nægur að mati viðmælenda þegar kemur að starfi á vettvangi skóla með börnum sem hafa orðið fyrri áföllum. \n \n Lykilorð: Kennarar, áföll, birtingarmyndir áfalla, velferð og farsæld barna.
Source: Skemman
Author: Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017266647
