Work

Aldraðir og stjúptengsl. Stuðningur við aldraða í stjúptengslum

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort aldraðir stjúpforeldrar á Íslandi fái stuðning frá uppkomnum stjúpbörnum sínum, og ef svo er, hvort munur sé á þeim stuðningi sem aldraðir foreldrar fá frá eigin börnum og stjúpbörnum. \nÖldruðum fer fjölgandi og gert er ráð fyrir því að sú þróun muni halda áfram en hérlendis býr stór hluti aldraðra á eigin heimili og margir fá einhvers konar þjónustu. Hið opinbera veitir formlega þjónustu og fjölskylda og vinir þess aldraða veita óformlega þjónustu í formi aðstoðar og stuðnings. Sýnt hefur verið fram á að það er óformlega aðstoðin sem gerir öldruðum kleift að búa lengur heima en þeir leita yfirleitt fyrst til fjölskyldunnar þegar þeir þurfa á aðstoð að halda. \nLýðfræðilegar og samfélagslegar breytingar hafa átt sér stað undanfarna áratugi sem hafa áhrif á fjölskyldur, hlutverk þeirra og virkni. Eins hafa þessar breytingarnar haft áhrif á þá umönnun og aðstoð sem aldraðir fá frá öðrum fjölskyldumeðlimum. Gildandi stefnur ríkis og sveitarfélaga ætla fjölskyldum stórt hlutverk í óformlegri þjónustu við aldraða en stefnurnar virðast ekki gera ráð fyrir fjölbreytileika fjölskyldna sem getur haft áhrif á þá aðstoð og þann stuðning sem aldraðir fá frá öðrum fjölskyldumeðlimum. \nÍ rannsókninni var notast við gögn úr megindlegri rannsókn, „Aldraðir og fjölskyldusamskipti“, sem framkvæmd var af þeim dr. Sigrúnu Júlíusdóttur, Sigurveigu H. Sigurðardóttur og Valgerði Halldórsdóttur. Rannsóknin var framkvæmd á tímabilinu 2013–2016. \nHelstu niðurstöður eru þær að aldraðir stjúpforeldrar fá stuðning frá uppkomnum stjúpbörnum en hann er áberandi minni en sá stuðningur sem uppkomin börn veita eigin foreldrum. \n \nLykilorð: aldraðir, fjölskyldur, stjúpfjölskyldur, formleg þjónusta, óformleg þjónusta, megindleg aðferð, stuðningur. \n
Source: Skemman
Author: Hildur Eva Guðmundsdóttir 1988
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017270730
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10