Work

Birtingarmyndir neteineltis í hópi áttundu- til tíundubekkinga við þrjá grunnskóla

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Netnotkun hefur aukist á Íslandi síðustu ár. Flest ungmenni, hér á landi, eru með aðgang að neti á heimilum, í snjallsímum eða í skólanum og hafa af því margvíslegt gagn. Um leið eru margar hættur sem netið hefur í för með sér. Umfjöllun um neteinelti er alltaf að aukast og hætturnar virðast leynast víða. Í þessari ritgerð er greint frá rannsókn þar sem markmiðið var að skoða tíðni neteineltis og birtingarmyndir þess meðal nemenda í 8.–10. bekk. Spurningalisti var lagður fyrir 294 ungmenni (132 drengi og 162 stúlkur) í 8.–10. bekk í þremur grunnskólum. Netið og tæknin í kringum það eru í stöðugri þróun og miklu skiptir að rannsóknir á þessu sviði fylgi þeirri þróun. Vonandi er þessi rannsókn hvatning fyrir aðra sem hafa áhuga á málefninu til að halda áfram rannsóknum með það að sjónarmiði að efla fræðslu og bæta samskipti ungmenna á netinu.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017431525
Cites: 33
Cited by:
Related to: 10