Að lægja öldurnar : mikilvægi stiglækkandi aðferða lögreglu
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að skoða áherslur og mikilvægi stiglækkandi aðferða (e. de-escalation techniques) í þjálfun lögreglumanna. Með stiglækkandi aðferðum er átt við að ráða úr aðstæðum án valdbeitingar eða með vægustu mögulegu úrræðum. Oftast eru aðferðirnar í formi samskipta til að draga úr ógnun og hættu á ofbeldi og opna fyrir aðrar leiðir til að ná farsælli úrlausn mála. Með stiglækkandi aðferðum er tilgangurinn einnig að draga úr hættu á meiðslum bæði hjá borgurum og lögreglumönnum. Á Norðurlöndunum er tíðni meiðsla há meðal lögreglumanna en þau meiðsli koma til að stærstum hluta vegna lögregluafskipta. Í dag fær valdbeiting, framkoma og framganga lögreglu í vestrænum samfélögum mikla athygli í fjölmiðlum og hjá almenningi almennt. Sú athygli er aðallega sprottin af sláandi birtingarmynd valdbeitingar hjá bandarísku lögreglunni. Sem dæmi má nefna hið þekkta mál lögreglumannsins Derek Chauvin, en harkaleg framganga hans við handtöku George Floyd er talin hafa valdið dauða hans. \nMál George Floyd og önnur lík hafa leitt til mikils óróleika í bandarísku samfélagi og mótmæla á götum úti en einnig háværrar kröfu um breytingar á löggæsluaðferðum. Í þessari ritgerð er greint frá notkun og þjálfun stiglækkandi aðferða í Bandaríkjunum, Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Niðurstöður rannsóknar okkar sýna að grunnþekking stiglækkandi aðferða er sótt að miklu leyti til bandarísku lögreglunnar þar sem mikill þrýstingur hefur undanfarið verið á frekari innleiðingu aðferðanna og að lögreglulið marki sér betra verklag og nýja stefnu með aukinni áherslu á að vernda mannslíf. Þá eru stiglækkandi aðferðir rauði þráðurinn í lögreglunámi á Norðurlöndunum og kemur sterkt fram bæði í bóklegu námi og verklegri þjálfun. \nNiðurstöður okkar sýna að lögð er mikil áhersla á notkun stiglækkandi aðferða á Íslandi og hinum Norðurlöndunum en undir öðrum formerkjum og heitum. Þetta eru í raun aðferðirnar sem gera lögregluliðin á Norðurlöndum mannúðlegri en víðast annars staðar og skilar sér meðal annars í miklu trausti almennings. Í Bandaríkjunum er hin mikla krafa á frekari notkun stiglækkandi aðferða tilkomin vegna afstöðu flestra aðila til þess að koma í veg fyrir óhóflega valdbeitingu og ofbeldi en í því liggur mikilvægi stiglækkandi aðferða. \nLykilorð: lögregla, stiglækkandi aðferðir, meðalhóf, þjálfun, samskipti.
Source: Skemman
Authors: Sigrún Herdísardóttir, Sæmundur Örn Sveinsson
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017434303
