Work

Athugun á mælitækinu Childhood autism rating scale 2 (CARS2). Forprófun á próffræðilegum eiginleikum

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Skimunarlistar eru mjög hentug leið til að flýta fyrir að börn sem þurfi á því að halda fái viðeigandi greiningu og nauðsynleg inngrip. Skimun og meðferðarúrræði verða að haldast í hendur, því endanlegur tilgangur skimunar er að koma börnum snemma í meðferð og þjálfun. Skimunartæki bera ekki alltaf kennsl á þau börn sem sýna væg einkenni, sem veldur því að vandamál þessara barna eru oft ógreind lengi. \nCARS2 er ný útgáfa á mælitækinu CARS sem hefur verið mikið notað hérlendis. CARS2-HF er ætlað að ná til hærra standandi einstaklinga á einhverfurófinu. CARS2 hefur reynst bæði áreiðanlegt og réttmætt í því að bera kennsl á vægara, óljósari einkenni einstaklinga á einhverfurófinu. Mælitækið hefur nú verið þýtt yfir á íslensku í von um innleiðingu þess á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. \nMarkmiðið rannsóknarinnar var að skoða próffræðilega eiginleika CARS2, kanna samræmi matsmanna, og bera CARS2 saman við önnur skimunartæki.
Source: Skemman
Authors: Thelma Sif Sævarsdóttir 1987, Birta Brynjarsdóttir 1987
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017475519
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10