Work

Borgnáma bifreiða: Í átt að auðlindasjálfstæði Íslands með borgnámi bifreiða

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hér á næstu síðum verður borgnám (e. urban mining) kannað, með áherslu á borgnám bifreiða - endurheimt málma úr bifreiðum. Borgnám er nýlegt hugtak sem er hentugt til að hjálpa til við að bæta auðlindastjórnun Íslands, nú þegar auðlindir jarðar eru nýttar til hins ítrasta til að greiða fyrir orkuskiptum, órói ríkir víða og birgðakeðjur geta raskast. Mikilvægt er að nýta allar mögulega auðlindir sem Ísland býr yfir. Í ritgerðinni eru metnir massar málma í íslenska bifreiðaflotanum fyrir árið 2020, þar sem alls voru 208027 tonn af járni, 28757 tonn af áli og 3907 tonn af kopar í dísil- og bensínbifreiðum. Í tvinn-, tengitvinn- og rafhlöðubílum má meðal annars finna 15373 tonn af járni, 3669 tonn af áli og 582 tonn af kopar. Ritgerðin skoðar lagaramma utan um orkuskiptin, meðal annars Græna Sáttmálann. Einnig er fjallað um stofnun gagnagrunns fyrir borgnám bifreiða á Íslandi, þar sem gerð er grein fyrir efnisinnihaldi bílaflota Íslands svo hægt sé að meta hugsanlegan ábata borgnáms. Umfjöllunin nær einnig yfir umhverfisáhrif hefðbundinnar námavinnslu og hún borin lítillega saman við borgnám. Niðurstaðan er að borgnám geti styrkt efnislegt sjálfstæði Íslands með því að draga úr þörf fyrir innflutta málma og einnig að borgnám geti stuðlað að heimsmarkmiðum Evrópusambandsins um sjálfbærra þróun.
Source: Skemman
Author: Jóhann Björn Birkisson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017539292
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10