Work

Ávinningur hringrásarlausna í byggingariðnaði. Lífsferilsgreiningar og hringrásarhagkerfið

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Byggingariðnaðurinn er einn umfangsmesti manngerði mengunarvaldurinn og var ábyrgur fyrir 21% af losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu árið 2019. Byggingariðnaðinum er lýst sem línulegu kerfi sem hefur í för með sér mikla úrgangsmyndun og sóun á auðlindum. Því þarf að innleiða hringrásarhagkerfið í byggingariðnaðinn til að minnka auðlindanotkun og lágmarka umhverfisáhrif. Hringrásareiningar geta spilað stórt hlutverk í því samhengi, með því að reisa byggingar úr forsteyptum einingum úr vistvænni steypu sem taka má í sundur og endurnota. Í verkefninu voru framkvæmdar lífsferilsgreiningar (LCA) með One Click LCA hugbúnaðinum fyrir þrjár mismunandi gerðir burðarvirkja; staðsteypt, forsteypt og hringrásarhús úr forsteyptum hringrásareiningum úr vistvænni steypu. Niðurstöður LCA voru bornar saman til að meta hvort umhverfislegur ávinningur sé í að nota hringrásareiningar. Þar að auki var fjallað um mismunandi aðferðir við að meta umhverfisávinning endurnotaðra efna í LCA. Niðurstaða greininganna sýndi fram á að hringrásarhúsið var með lægsta kolefnissporið af burðarvirkjunum þremur á fermetra, eða 197 kg CO2-íg/m2. Í samanburði var staðsteypta burðarvirkið með 224 kg CO2-íg/m2 og forsteypta burðarvirkið 216 kg CO2-íg/m2. Einnig var gerð greining fyrir hringrásarhús úr notuðum hringrásareiningum þar sem notast var við aðferð í One Click LCA til að meta umhverfisáhrif endurnotaðra efna og var kolefnisspor þess 138,5 kg CO2-íg/m2. Það minnkar losun gróðurhúsalofttegunda um 46% miðað við fyrsta notkunartíma hringrásareininganna og 50%-52% í samanburði við hefðbundna hönnun burðarvirkja. Hringrásareiningar geta því verið ein leið byggingariðnaðarins inn í hringrásarhagkerfið og til að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda í byggingariðnaðinum.
Source: Skemman
Author: Lilja Sigurrós Davíðsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017602432
Cites: 33
Cited by: 3
Related to: 10