Breytingastjórnun í kjölfar sameiningar Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla í einn skóla, Háaleitisskóla
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Stefnumiðuð stjórnun í skipulagsheildum er mikilvæg í hröðu samfélagi nútímans. Við sameiningar og í því breytingaferli sem óhjákvæmilega verður í kjölfarið er skilvirk og markviss breytingastjórnun lykilatriði svo tilgangur og markmið með breytingum skili tilætluðum árangri. \nMarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þær aðferðir sem notaðar voru í breytingum þegar Álftamýrarskóli og Hvassaleitisskóli sameinuðust í einn skóla, Háaleitisskóla. Einnig var kannað hvernig breytingaferli skólans var háttað og framkvæmd þess. Fræðileg yfirlit var um breytingastjórnun, orsakir hennar, þörf fyrir stjórnun breytinga og viðbrögð og andstöðu starfsfólks við þær, vinnustaðamenningu og hvernig eigi að ná fram árangursríkum breytingum. Rannsóknir hafa sýnt að meðal annars er skýr framtíðarsýn mikilvægur áhrifaþáttur í árangursríkri innleiðingu breytinga. \nEigindlegum aðferðum var beitt í þessari rannsókn og tekin viðtöl við átta starfsmenn Háaleitisskóla. Notaður var viðtalsrammi með hálfopnum spurningum og reynt að ná fram mati viðmælenda til að varpa ljósi á hvaða aðferðir voru notaðar og hvernig staðið var að breytingaferlinu og framkvæmd þess við innleiðingu breytinga. Síðan voru dregnar ályktanir af mati viðmælendanna og greiningu gagna og settar fram í niðurstöðum. \nNiðurstöður benda til þess að þær aðferðir sem notaðar voru í breytingum Háaleitisskóla vegna sameiningar skólanna tveggja eru í samræmi við margar kenningar og aðferðafræði breytingastjórnunar, einnig samræmast aðferðirnar breytingalíkani Kotters um átta þrep til árangursríkrar breytingastjórnunar. Framkvæmd breytingaferlisins gekk í heild ágætlega fyrir sig, en innleiðing breytinganna gekk betur fyrir sig í starfsstöðinni við Álftamýri heldur en í þeirri við Hvassaleiti. Þættir eins og markmið og framtíðarsýn hefðu mátt vera skýrari, upplýsingagjöf öflugri og endurgjöf til starfsmanna skólans markvissari sem og betri eftirfylgni með innleiðingu breytinganna. \nHelstu takmarkanir á rannsókninni voru þær að ályktanir út frá niðurstöðum hennar eru dregnar út frá sjónarhorni viðmælenda og ekki hægt að alhæfa út frá þeim þrátt fyrir að sterkar vísbendingar fáist um þann veruleika sem athugaður var.
Source: Skemman
Author: Sif Cortes 1966
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017757323
