Brottfall úr 5 vikna hugrænni atferlismeðferð í hópi
Year: 2008
Type: dissertation
Abstract: Könnuð voru áhrif lýðfræðilegra og klínískra breyta á brottfall úr 5 vikna hugrænni \natferlismeðferð í hópi. Meðferðin, sem er tilraunaverkefni á vegum Landspítala Háskólasjúkrahúss, \nfór fram á átta heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þátttakendur voru 441 \nskjólstæðingur heilsugæslu (82,5% konur), flestir með þunglyndi og kvíðaröskun. Brottfall úr meðferð \nvar skilgreint á þrjá vegu: Ekki mætt í síðasta bókaða tíma, mætt í færri en þrjá tíma og mætt í færri \nen fjóra tíma (miðgildisskipting). Kannaður var munur á þeim sem hófu og hófu ekki meðferð (mættu \nbara í inntökuviðtal) og þeim sem mættu og mættu ekki í eftirfylgdartíma eftir þrá mánuði. \nSkilgreiningin ,,ekki mætt í síðasta bókaða tíma“ aðgreindi brottfallna á fleiri breytum en \ntímafjöldaskilgreiningarnar. Áhrif breyta voru ekki mikil. Þrepa-hlutfallagreining (logistic regression) \nsýndi að vægari depurðareinkenni (sp.1 á BDI-II), að reykja, búa á höfuðborgarsvæðinu og vera ekki \nháskólamenntaður spáði best fyrir um brottfall úr meðferðinni og skýrði um 10% dreifingar. Að \nreykja, hafa ekki áður farið í meðferð við sama vanda, stunda ekki líkamsrækt, búa í höfuðborginni og \nhafa meiri einkenni á spurningu 4 á DAS-A skýrðu 8% þess að mæta ekki í eftirfylgd. Karlkyn, \nþekking á hugrænni atferlismeðferð og minni ánægjumissir (sp.4 á BDI-II) spáðu best fyrir um það að \nhefja ekki meðferð og skýrðu saman 6% dreifingar.
Source: Skemman
Author: Þorgerður Guðmundsdóttir 1966
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017808809
