Work

Chronotypes and Insomnia in Iceland : how does chronotype affect insomnia, as well as anxiety, depression and SAD for people in Iceland?

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Dægurgerðir er hugtak sem lýsir sólahringstakti einstaklings og hvernig líffræðileg klukka hans samstillir hugræna, hegðunar og lífeðlisfræðilega ferla sem rísa í samræmi við fyrripart eða seinnipart dagsins. Morningness-Eveningness Questionnaire (MEQ) er spurningalisti sem mælir það hvort einstaklingar eru morguntýpur eða kvöldtýpur. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að það er marktækur 3ja klukkustunda munur á hápunkti dægursveifla milli morgun- og kvöldtýpa. Íslendingar fara að jafnaði seinna að sofa en aðrir Evrópubúar og tilgátur hafa verið settar fram um að það sé sökum þess að Ísland er í vitlausu tímabelti. Þetta gæti þýtt að dægurgerð Íslendinga sé að jafnaði seinni með tilliti til landfræðilegrar staðsetningar og að þeir upplifi meiri klukkuþreytu (social jetlag) miðað við aðrar þjóðir. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl dægurgerða við þunglyndi eða þunglyndislotur í tengslum við aðra sálfræðilega kvilla. Af sálfræðilegum heilsufarsvandamálum er svefnleysi með þeim algengari og það hefur sterka fylgni við aðra sálfræðilega kvilla, sérstaklega þunglyndi og kvíða. Tilgátur eru á lofti um að meðferð við svefnvandamálum gætu mögulega komið í veg fyrir þróun þunglyndis. Það er fylgni milli þess að vera kvöldtýpa, þjást af skammdegisþunglyndi (SAD) og að eiga við svefnvandamál að stríða og margar rannsóknir hafa sýnt greinilegan mun milli morguntýpa og kvöldtýpa þegar kemur að svefngæðum. Kvöldtýpur eru viðkvæmari fyrir klukkuþreytu og er það talið geta gefið til kynna að það að vera kvöldtýpa sé ákveðinn áhættuþáttur þegar kemur að því að þróa með sér skammdegisþunglyndi fyrir þá sem þjást þegar af svefnleysi. Niðurstöður fyrri rannsókna vöktu áhuga okkar og vildum við því skoða tengslin milli dægurgerða, svefnleysis, kvíða, þunglyndis og skammdegisþunglyndis. Rannsóknarspurningin okkar er: Hvaða áhrif hefur dægurgerð á svefnleysi, ásamt kvíða, þunglyndi og skammdegisþunglyndi hjá Íslendingum? Tilgátan okkar er: Það er fylgni milli dægurgerða og svefnleysis. \nAðferð: Okkar úrtak innihélt 261 þátttakanda. Eftir að hafa tekið út brottfallsgildi, þátttakendur sem búa ekki á Íslandi og þá hafa ekki íslensku sem móðurtungumál, voru 249 þátttakendur innifalnir í rannsókninni. Spurningalistarnir sem við lögðum fyrir þátttakendurna voru SPAQ, MEQ-IS, MIQ-RS-IS, BIS-IS, PHQ-9 og DASS. Óháða breytan okkar var dægurgerð og háðu breyturnar okkar voru svefnleysi, kvíði, þunglyndi og skammdegisþunglyndi (SAD). Við skoðuðum einnig breyturnar kyn og aldur sem óháðar breytur, til þess að sjá hvort það væri munur þar þegar kemur að dægurgerðum. Fyrir tölfræðiúrvinnslu gagnanna notuðum við óstikaða dreifigreiningu (ANOVA), kí-kvaðratpróf, og tvíkosta aðhvarfsgreiningu með Raðgerðinni gml(). \nNiðurstöður: Það var marktækur munur á milli dægurgerða í tengslum við svefnleysi (p<.001), þunglyndi (p<.001), kvíða (p<.001) og skammdegisþunglyndi (p=.036). Það var marktækur munur þegar kom að aldri og dægurgerðum (p<.001). Þegar við skoðuðum kyn í tengslum við háðu breyturnar okkar, reyndist enginn marktækur munur vera þar á milli. \nÁlyktun: Fleiri rannsóknir eru nauðsynlegar til þess að skilja áhrif þess að vera í röngu tímabelti á dægurgerðir, líkt og á Íslandi. Við mælum með samanburði á íslensku úrtaki við úrtak sem býr í réttu tímabelti til að sjá áhrif þess á svefnleysi, þunglyndi, kvíða og skammdegisþunglyndi. \nLykilhugtök: Ísland, dægurgerð, svefnleysi, þunglyndi, kvíði, skammdegisþunglyndi (SAD)
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7017976485
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10