Work

Eflum hreyfingu og bætum hugræna getu og námsárangur barna : handbók fyrir hreyfingu í kennslustofum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur verkefnisins var að útbúa handbók fyrir kennara og nemendur í íslenskum grunnskólum þar sem áhersla er lögð á hvernig hægt er að innleiða meiri hreyfingu í kennslustundir. Til að undirbyggja handbókina var unninn ítarlegur fræðilegur inngangur en markmið handbókarinnar er að efla einbeitingu, hugræna getu og þátttöku í skólaverkefnum og bæta námsárangur og á sama skapi bæta heilsu og vellíðan barna í grunnskólum með hreyfingu. Handbókin fjallar um þau heilsubætandi áhrif sem regluleg hreyfing hefur á börn og unglinga, hvernig hún getur styrkt hugræna getu og hvernig hægt er að samþætta hreyfingu við bóklegt nám. Þá koma einnig fram leiðir til að auka hreyfingu í kennslustofunni og nýta hana til að stuðla að betri heilsu, ánægju og námsárangri nemanda. Vonast er til þess að handbókin geti nýst kennurum og öðrum sem vinna í grunnskólum. Til að auka hreyfingu barna almennt sem og í kennslustundum, þannig að hægt sé að auka vellíðan, einbeitingu og árangur barna og unglinga, og stuðla að heilbrigðum lífsstíl með aukinni hreyfingu.
Source: Skemman
Author: Steinar Smári Hilmarsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7018579559
Cites: 126
Cited by:
Related to: 10