„Ef við sinnum ekki þessum fréttum er enginn sem gerir það“ : álag í starfi blaða- og fréttamanna á landsbyggðinni
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Mikil ábyrgð hvílir á herðum blaða- og fréttamanna um allan heim. Fjölmiðlun hefur tekið stakkaskiptum undanfarin ár með þeim tækniframförum sem hafa átt sér stað. Þessar breytingar hafa haft áhrif á starfsumhverfi blaða- og fréttamanna, sem margir greina frá auknu álagi í kjölfarið. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig blaða- og fréttamenn á landsbyggðinni upplifa álagið sem fylgir starfinu og hverjir helstu álagsþættir séu. Til þess að fá svör við þessum vangaveltum var framkvæmd eigindleg rannsókn sem tíu blaða- og fréttamenn á landsbyggðinni tóku þátt í sem viðmælendur. Með aðstoð þeirra tókst að sýna fram á að álagið í starfi blaða- og fréttamanna á landsbyggðinni sé álitið nokkuð mikið og hefur tímapressa, ábyrgð, nálægðin við samfélagið og óljós skil milli vinnu og einkalífs helst áhrif. Þá sýndu niðurstöður jafnframt fram á að of mikið álag gat haft andleg og líkamleg áhrif á blaða- og fréttamennina. Stuðningur í starfinu var talinn misgóður af blaða- og fréttamönnunum en almennt má halda því fram að fjölmiðlafyrirtæki geti gert betur á því sviði. Ljóst er að mörg sóknarfæri eru þegar kemur að íslenskum rannsóknum á sviði álags í starfi blaða- og fréttamanna, en framkvæmd þessarar rannsóknar er tilraun til þess að fylla upp í það tómarúm.
Source: Skemman
Author: Amanda Guðrún Bjarnadóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Journalism and Media Studies
Subfield: Communication
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7018716860
