„Ekki borða eins og úlfur í afmæli“. Birtingarmynd fordóma og mismununar gegn konum í yfirþyngd á íslenskum vinnumarkaði
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hverjar birtingarmyndir fordóma og mismununar væru á vinnumarkaði þegar kemur að konum í yfirþyngd. Einnig var skoðað hvaða afleiðingar slík meðferð hefur þó ekki hafi verið markmið að rannsaka langtímaafleiðingar heldur þær afleiðingar sem konurnar upplifa samhliða þessari lífreynslu. Engar íslenskar rannsóknir eru til sem tengast fordómum og mismunun á vinnumarkaði og það eina sem hefur verið rannsakað í þessum málaflokki var árið 2015 en þá var tekin saman skýrsla sem miðaði að því að draga úr offitu á Íslandi og var skrifuð af sérfræðingum hjá Velferðarráðuneytinu. Skýrslan var ein aðgerða á vegum landlæknisembættisins til að kortleggja fitufordóma og vinna gegn þeim. Við þessa rannsókn var notast við eigindlega rannsóknaraðferð. Tekin voru viðtöl við sjö konur sem höfðu reynslu af íslenskum vinnumarkaði. Allar höfðu þær verið eða voru enn í yfirþyngd. Áhersla var lögð á að skoða hvernig fordómar og mismunun í þeirra garð lýsti sér og hvernig upplifun þeirra var. Niðurstöður viðtalanna voru að lokum bornar saman við fræðilega samantekt um konur og fordóma, mismunun á vinnumarkaði og staðalímynd af þeirra sem eru í ofþyngd. \nHelstu niðurstöður leiddu í ljós að konurnar höfðu allar upplifað fordóma og mismunun á vinnumarkaði á borð við móðgandi athugasemdir, niðurlægjandi hegðun á vinnustaðnum, kröfu um að leggja meira á sig og jafnvel vinnumissi svo eitthvað sé nefnt. Þessi upplifun leiddi svo til kvíða, þunglyndis, skerts sjálfstrausts og annarra andlegra afleiðinga.
Source: Skemman
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Labour Market and Migration
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7018865525
