Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið: Að lýsa bakgrunni öryggishnappþega á Íslandi og nýtingu hnappsins hjá þeim. Einnig að rannsaka hvort munur sé á þessum þáttum hjá hópi þeirra sem duttu minnst einu sinni yfir 12 mánaða tímabil samanborið við hóp þeirra sem duttu ekki. Enn fremur að gera grein fyrir umfangi byltuvandans meðal hnappþega og rannsaka hvort það tengdist kyni eða aldurshópi þeirra. Að lokum var markmiðið að meta fýsileika þess að kortleggja aðstæður, orsakir og afleiðingar bylta hjá hnappþegum byggt á fyrirliggjandi gögnum frá Öryggismiðstöðinni (ÖM). \nAðferðir: Notuð voru fyrirliggjandi gögn um einstaklinga sem höfðu verið með öryggishnapp frá ÖM samfellt yfir 12 mánaða tímabil og höfðu jafnframt fengið samþykkta niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Gögnin voru greind með megindlegri og eigindlegri aðferð. Annars vegar var unnið með megindleg gögn heildarúrtaks (N = 765) sem lýstu bakgrunni hnappþega, nýtingu öryggishnappsins og umfangi byltuvandans meðal hópsins. Hins vegar var gerð forrannsókn og leitað upplýsinga sem endurspegluðu aðstæður, orsakir og afleiðingar bylta með eigindlegri innihaldsgreiningu á atvikaskýrslum ÖM um byltur tilgangsúrtaks (N = 5). \nNiðurstöður: Langflestir hnappþegar (93,9%) voru 65 ára eða eldri en einstaklingar í heildarúrtakinu voru á aldrinum 23 til 100 ára (M = 81,7, sf = 10,03) og 73,7% þeirra voru konur. Margir glímdu við langvinna sjúkdóma og stærstur hluti hnappþega bjó í þéttbýli innan höfuðborgarsvæðisins. Þeir sem duttu minnst einu sinni voru með marktækt fleiri ICD-10 sjúkdómsgreiningar (p = 0,042) en að öðru leyti var bakgrunnur þess hóps sambærilegur bakgrunni þeirra sem duttu ekki (p = 0,185 – 0,798). Milli hópanna reyndist þó marktækur munur á nýtingu öryggishnappsins sem fólst í því að þeir sem duttu nýttu hnappinn meira, í öllum tilheyrandi breytum (p < 0,001). Það hvort og hve oft hnappþegar duttu var ekki tengt við kyn. Algengi bylta var svipað milli aldurshópa en fjöldi bylta/ári var marktækt meiri meðal yngsta aldurshópsins (< 65 ára) samanborið við elstu tvo hópana (75 – 84 ára, p = 0,017 og 85 ára eða eldri, p = 0,046). Atvikaskýrslur ÖM lýstu aðallega viðbrögðum ÖM við hjálparboðum vegna bylta en hluti þeirra hafði einnig að geyma upplýsingar um aðstæður, orsakir og afleiðingar. \nÁlyktanir: Kynntar eru nýjar rannsóknarniðurstöður um faraldsfræði bylta hjá einstaklingum með öryggishnapp ásamt lýsingu á bakgrunni þeirra sem og nýtingu hnappsins. Samantekt á innihaldi atvikaskýrslna ÖM um byltur tilgangsúrtaks studdi fýsileika þess að slíkar skýrslur geti nýst í áframhaldandi rannsóknum á byltum hnappþega. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á stöðu mála hérlendis tengt viðfangsefnum hennar og byggja undir frekari rannsóknir.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Viktoría Hafsteinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019011086
