Work

Erlendir ferðamenn á bráðamóttöku Landspítala: Sértækar hjúkrunarþarfir

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Fjöldi erlendra ferðamanna sem heimsækja Ísland hefur tvöfaldast frá árinu 2010. Með fjölgun erlendra ferðamanna til landsins má áætla að álagið á heilbrigðisstofnanir hafi aukist. Íslenskar rannsóknir skortir á komum erlendra ferðamanna á bráðamóttöku og hjúkrunarþörfum þeirra. Erlendir ferðamenn á Íslandi eru fjölbreyttur hópur á öllum aldri með margvísleg heilsufarsvandamál og þurfa sérstaka þjónustu vegna tungumálaerfiðleika, varúðar vegna mögulegra smitsjúkdóma og sérstök úrræði við útskrift. \nTilgangur og markmið: Tilgangur þessarar rannsóknar var að greina þjónustuþörf erlendra ferðamanna á bráðamóttöku með tilliti til hjúkrunarþarfa. Markmiðið er að nota niðurstöðurnar til að byggja upp betri þjónustu fyrir ferðamenn sem leita á bráðamóttöku. \nAðferðir: Aftursæ rannsókn þar sem farið var yfir gögn úr sjúkraskrám erlendra ferðamanna sem fengu þjónustu á bráðamóttöku Landspítala frá 21. maí til 1. september 2014 þar sem skráðar voru upplýsingar tengdar sérstakri þjónustu við ferðamenn. Lýsandi greining var gerð á ástæðu komu, skipulagi ferðar, túlkaþjónustu, einangrun, annarri sértækri þjónustu, rannsóknum, greiningum við útskrift, útskrift/innlögn ásamt öðrum sérstökum úrræðum við útskrift, með tilliti til kyns og aldurs. Einnig var leitast við að greina tengsl milli þjónustu, kyns og aldurs, greina mun á þjónustu milli mánaða og skoða komuástæður milli kyns og aldursflokka. \nNiðurstöður: Alls voru skráðar upplýsingar um sértæka þjónustu við 520 erlenda ferðamenn á bráðamóttöku Landspítala á tímabilinu. Af þeim voru 48,5% karlar og 51,3% konur, meðalaldur kvenna var 46 ár en karla 43,5 ár. Flestir voru á eigin vegum (n=318). Ferðamenn frá skemmtiferðaskipum voru 8,8%. Notast var við túlkaþjónustu í 3,7% tilvika og 10,4% sjúklinga þurftu að fara í einangrun. Þar af voru sjúklingar einangraðir vegna gruns um MÓSA smit í 76% tilvika. Röntgenmynd var sú rannsókn sem flestir ferðamannanna fóru í (n=179). Ferðamenn sem skráðir voru með sérstök úrræði við útskrift voru 23%. Leggja þurfti 8,5% sjúklinganna inn. Ekki var marktækur munur á þjónustu milli kynjanna en þeir sem voru skráðir í einangrun voru marktækt eldri. \nÁlyktun: Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Hún getur gefið vísbendingu um aukna og markvissari þjónustuþörf erlendra ferðamanna. Einnig sýnir hún að þörf er á bættri skráningu viðbótarþjónustu við erlenda ferðamenn á bráðamóttöku Landspítala.
Source: Skemman
Authors: Helga Þórey Friðriksdóttir, Dagný Lóa Sighvatsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019014614
Cites: 28
Cited by: 2
Related to: 10