Work

Fjármál og peningar. Áhrif lánsfjár á hagkerfi

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Peningar eru með einhverjum hætti hlutlausir í fræðikerfi hefðbundinna hagfræðinga – hlutfall peninga og raunframleiðslu verður að vera fast. Ómögulegt var því fyrir þá hagfræðinga að sjá fram á alþjóðlegu fjármálakreppuna sem hófst 2007-8 í kjölfar hækkandi hlutfalls fjármálalegs auðs og raunhagkerfisins. \n \nFramleiðslulögmál eru önnur í fræðikerfum Joseph Schumpeter og John Maynard Keynes þar sem peningar leika lykilhlutverk og hafa áhrif á hvatir og ákvarðanir. Nauðsynlegt er að gera greinarmun á því hvort peningar sem bankar búa til stuðli að hagvexti eða eignabólum, því hagnaður vegna sölu framleiddra gæða raungeirans er annað en verðhækkunarágóði vegna sölu fjármálalegra eigna.
Source: Skemman
Author: Bragi Bragason 1981
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019014631
Cites: 27
Cited by:
Related to: 10