Work

Fár er svo vitur að allt sjái sem er: Tiðni óráðs á gjörgæsludeildum Landspítala

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Óráð er truflun á athygli og vitund sem þróast á stuttum tíma. Óráð er algengt hjá sjúklingum á gjörgæsludeildum og getur haft líkamlegar, sálrænar og vitrænar afleiðingar. Lykilatriði í fyrirbyggingu og meðferð óráðs er að meta óráð regulega með viðurkenndu matstæki. \nMarkmið: Að kanna tíðni og skráningu hjúkrunarfræðinga á óráði hjá sjúklingum á gjörgæsludeildum Landspítala á sex vikna tímabili fyrir innleiðingu verklagsins Verkir, vökustig og óráð. \nAðferð: Rannsóknarsniðið var megindlegt, lýsandi og afturvirkt. Inntökuskilyrði sjúklinga voru að vera 18 ára eða eldri og hafa dvalið á gjörgæsludeildum Landspítala ≥ 24 klukkustundir frá 1. desember 2017 til 12. janúar 2018 (N=95). Gögn um tíðni óráðs, metið með matstækinu Confusion Assessment Method for the Intensive Care Unit (CAM-ICU) og skráning hjúkrunarfræðinga á óráðsmati í gjörgæsluskráningarkerfi voru athuguð. Forspárgildi óráðs (PRE-DELIRIC SCORE) var notað til að meta líkur á óráði. Gátlistinn Transparent Reporting of Evaluations with Non-randomized Designs (TREND) var notaður við vinnslu rannóknarskýrslunnar. \nNiðurstöður: Af 95 sjúklingum voru fimm (5%) með óráð. Sjö sjúklingar (7%) af 95 voru metnir með CAM-ICU matstækinu samkvæmt skráningu hjúkrunarfræðinga. Meðallíkur á óráði hjá sjúklingum (N=95) í gjörgæslulegunni voru 33%. Alls 60 sjúklingar (63%) af 95 höfðu meðal til mjög miklar líkur á óráði samkvæmt forspárgildi óráðs. \nÁlyktun: Óráð hjá sjúklingum á gjörgæsludeildum getur haft áhrif á hvernig þeim farnast. Þörf er á úrbótum í mati og skráningu á óráði á gjörgæsludeildum Landspítala. Innleiðing verklagsins Verkir, vökustig og óráð gæti haft í för með sér úrbætur og ávinning fyrir gjörgæslusjúklinga. \nLykilorð: Fyrirbygging, gjörgæsludeildir, hjúkrun, leiðbeiningar, óráð, skráning.
Source: Skemman
Authors: Arndís Embla Jónsdóttir, Kristrún Vala Benediktsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019170892
Cites: 70
Cited by:
Related to: 10