Work

Grenndarhitaveita við Ísafjarðarbæ og kortlagning á lífrænum hráefnum

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Fjárfestingar í sjálfbærum orkukerfum styðja við innviði samfélagsins og auka lífsgæði. Áhugavert er að opna umræðu um vistrækt í því samhengi. Við Ísafjarðarbæ er um þessar mundir verið að skoða uppsetningu á varmadælu til upphitunar á miðlægri hitaveitu bæjarfélagsins. Tækifæri liggja í að hita framrásarvatn veitunnar með brennslu á gösum sem fengin eru með gerjun lífrænna hráefna. Markmið þessa verkefnis er könnun á þeim möguleika. Helsta framlag þessa verkefnis til umræðunnar um líforku á Íslandi felst í samantekt og frumrannsóknum á landbúnaðartölum með KDE hitakortum. Niðurstöður verkefnisins kalla á frekari skoðun á þeim möguleikum sem liggja í nýtingu á innviðum sem þegar eru fyrir hendi við Ísafjarðarbæ. Í því sambandi er áhugavert að skoða ónýtta innviði gömlu sorpbrennslustöðvarinnar. Vandi við sorpförgun frá Ísafjarðarbæ er hluti af þessu samhengi og því væri skoðunarvert að nýta lífræn hráefni sem þar falla til sem hluta af heildarmyndinni.
Source: Skemman
Author: Kári Gunnarsson
Language: Icelandic
Field: Energy
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019188646
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10