Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Í kínverskum borgum býr fjöldi farandverkafólks sem gjarnan á uppruna sinn að rekja til dreifbýlis. Á þessu ári urðu þau tímamót að fleiri búa í borgum en sveitum landsins. Fólksflutningar innan Kína eru orðnir að föstu einkenni kínversks samfélags, en farandverkafólk flyst til borganna í þeim tilgangi að bæta lífskjör sín og sinna. Stjórnvöld mótuðu búsetustefnu landsmanna og tekið var upp búsetuskráningarkerfi, svokallað hukou-kerfi, við upphaf valdatíma Kommúnistaflokks Kína 1949, til þess að stjórna efnahagslegri þróun og hamla taumlausum flutningum fólks til borganna. Í dag má líta á hukou¬-búsetuskráningarkerfið sem eins konar átthagafjötra og líkja því við vistarbandið forna á Íslandi. Vegna kerfisins býr farandverkafólk réttindalaust við bág kjör innan borganna og sú jaðarstaða mótar sjálfsmynd þessa fjölmenna hóps. \n Markmið þessa verkefnis var að fá innsýn í heim farandverkakvenna í Kína og fræðast um hvernig þær skilgreina sig sjálfar og eigin stöðu í kínverska borgarsamfélaginu. Farandverkakonur taka að vissu leyti völdin í sínar hendur og stíga út fyrir rammann með því að freista gæfunnar á eigin vegum í borgum landins. Þær ögra hefðbundum gildum sem eru ríkjandi í dreifbýlinu og snúa aftur heim síðar með nýjar hugmyndir um hlutverk og stöðu kynjanna. \n Ritgerðin byggir á þriggja mánaða vettvangsrannsókn sem ég framkvæmdi á Yaxiu-markaðnum í Peking árið 2011. Notast var við etnógrafískar rannsóknaraðferðir auk þess að tekin voru viðtöl við tólf viðmælendur. \nLykilorð: Mannfræði, Kína, Peking, Fólksflutningar, Farandverkafólk, Farandverkakonur, Hukou, Einbirnisstefnan
Source: Skemman
Author: Sigrún Kristínardóttir Valsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019216852
