Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Á Íslandi eins og annars staðar hefur þróunin verið sú að hlutfall aldraðra er sífellt að aukast í samfélaginu. Stefna íslenskra stjórnvalda í málefnum aldraðra er m.a. að eldri borgarar búi sem lengst í heimahúsum. Þegar litið er til þessara áherslna sést að fleiri aldraðir munu búa einir og hættan á félagslegri einangrun og einmanaleika eykst sem því nemur. Félagsleg einangrun og einmanaleiki tengjast ýmsum heilsufarsvandamálum og hafa slæm áhrif á velferð og lífsgæði aldraðra. Nauðsynlegt er að heimahjúkrunarfræðingar séu upplýstir um þessi áhrif félagslegrar einangrunar og einmanaleika á aldraða skjólstæðinga. Jafnframt er mikilvægt að þeir séu meðvitaðir um einkenni og áhættuþætti einmanaleika og þekki viðeigandi meðferðarúrræði. Hópastarfsíhlutanir sem byggja á gagnreyndri þekkingu og fela í sér virka þáttöku hafa reynst árangursríkastar í að vinna gegn einmanaleika aldraðra. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að skoða áhrif félagslegrar einangrunar og einmanaleika á heilsu aldraðra og fjalla um leiðir sem reynst hafa árangursríkar í starfi hjúkrunarfræðinga til að koma í veg fyrir og draga úr þessum þáttum. Því var leitast við í þessu verkefni að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: ,,Hvaða áhrif hafa félagsleg einangrun og einmanaleiki á andlega og líkamlega heilsu aldraðra?" og ,,Hvað geta hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun gert til að minnka einmanaleika meðal aldraðra skjólstæðinga?“ \n \n \n \nLykilorð: félagsleg einangrun, einmanaleiki, aldraðir, hjúkrun, heimahjúkrun
Source: Skemman
Author: Íris Björk Símonardóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019252255
