Geðrækt : staða lífsleikni í íslenskum grunnskólum
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi meistaraprófsritgerð byggist á rannsókn sem framkvæmd var á átta mánaða tímabili frá október 2015 til júní 2016 á vegum Embætti landlæknis. \nMegintilgangur verkefnisins var að kortleggja stöðu lífsleikni í grunnskólum landsins en könnunin í heild hafði fleiri markmið en tekin eru til umfjöllunar í þessu verkefni. Um er að ræða megindlega þýðisrannsókn þar sem lagt var upp með að hafa samband við alla 168 grunnskóla landsins. \nGagnaöflun samanstóð af símaviðtölum við fulltrúa skólanna, í flestum tilfellum skólastjóra. Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á svörum viðmælenda frá alls 153 skólum eða 91% af grunnskólum landsins. \nRannsóknarspurningar sem settar voru fram eru þrjár: \n•\tHver er núverandi staða lífsleiknikennslu í grunnskólum landsins? \n•\tEr verið að nota sérstakt námsefni eða heildarskólanálgun til að efla félags- og tilfinningafærni nemenda? \n•\tHvert er mat viðmælenda á þeirri kennslu og þjálfun í atferlis-, félags- og tilfinningafærni sem fram fer innan skólans? \nÍ fræðilega hluta verkefnisins er leitast eftir að skoða geðrækt í skólastarfi og stöðu lífsleikni sem námsgreinar, bæði í fræðilegu samhengi og í ljósi stöðunnar í grunnskólum hér á landi. \nHelstu niðurstöður gefa til kynna að lífsleikni sé kennd í flestum skólum landsins, á flestum aldursstigum og stór hluti skólanna sé með helstu markmið og áherslur í lífsleikni skráð í skólanámskrá hjá sér. Fáir skólar hafa sett fram lífsleikniáætlun. \nAlgengast var að skólarnir væru að nota formlegt námsefni á yngsta stigi en það fór minnkandi eftir því sem leið á grunnskólagönguna. Í 1. bekk voru 39,2% skólanna með námsefni en einungis 15,7% skólanna voru með námsefni í 10.bekk. \nÞá þótti 48% viðmælenda sú kennsla og þjálfun sem nemendur fengu innan skólanna í sálfélagslegri færni nægilega mikil, en í 41% tilfella þótti þeim hún ekki nægileg og 11% viðmælenda gátu ekki lagt mat á það. Í mati viðmælenda á því hvort kennslan og þjálfunin væri nægilega markviss sögðu 54% þeirra svo vera en 38% upplifðu hana ekki nægilega markvissa og 8% sögðust ekki vera vissir.
Source: Skemman
Author: Íris Dögg H. Marteinsdóttir 1982
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019309530
