Work

Geðheilsuvernd á meðgöngu: þversniðsrannsókn á skimun, viðhorfum og áskorunum ljósmæðra

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Ómeðhöndlaður geðheilsuvandi á meðgöngu getur haft óafturkræf og skaðleg áhrif útkomu móður og barns. Ljósmæður telja áskoranir vera til staðar þegar kemur að skimun fyrir geðheilsuvanda og geðheilsuvernd kvenna. Árið 2017 birti Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu leiðbeiningar um skimun fyrir geðheilsuvanda í meðgönguvernd og ráðlagt var að ljósmæður á Íslandi hæfu formlega skimun. Skimist kona jákvæð eða yfir mörkum þeirra lista/spurninga sem lagðir eru fyrir er eitt af fyrstum úrræðum að bjóða aukinn stuðning ljósmóður. Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem viðhorf og þekking ljósmæðra á skimun fyrir geðheilsuvanda og á geðheilsuvernd fyrir þungaðar konur er skoðuð. \nTilgangur: Að meta, hvort og með hvaða hætti ljósmæður/ljósmæðranemar skima fyrir geðheilsuvanda á meðgöngu. Jafnframt að kanna viðhorf ljósmæðra/nema til geðheilsuvanda og skoða hvort hindranir standi í vegi fyrir skimun. Auk þessa var tilgangur að kanna hvort ljósmæður/nemar teldu færni sína og þekkingu í skimun og geðheilsuvernd vera nægjanlega eða hvort þær teldu sig hafa þörf fyrir aukna þekkingu og þjálfun í geðheilsuvernd þungaðra kvenna. \nAðferðir: Um lýsandi þversniðsrannsókn var að ræða, spurningalisti var sendur út á allar ljósmæður sem sinna meðgönguvernd á Íslandi, n= 90 talsins og alla ljósmæðranema í námi vorið 2023, n= 27. Notast var við lýsandi tölfræði og fylgnipróf Spearman rho til að kanna fylgni á milli bakgrunnsbreyta og útkomubreyta ljósmæðra/nema. \nNiðurstöður: Fimmtíu og níu prósent ljósmæðra sem sinna meðgönguvernd á Íslandi tóku þátt en engir nemar svöruðu listanum. Ljósmæður töldu sig hafa hæfni og færni til að framkvæma flesta þætti skimunar. Þær upplifðu ýmsar hindranir þegar að skimun kom og töldu sig skorta þekkingu og þjálfun í flestum þáttum er snúa að geðheilsuvernd. Yngri ljósmæður og þær með styttri starfsaldur upplifðu frekar hindranir í mörgum þáttum er snúa að skimun og geðheilsuvernd. \nÁlyktanir: Út frá niðurstöðum má álykta að þrátt fyrir að ljósmæður telji sig búa yfir færni til að framkvæma skimun fyrir geðheilsuvanda á meðgöngu þá virðast ýmsar hindranir vera til staðar, sérstaklega hjá þeim sem yngri eru og hafa styttri starfsaldur. Mikilvægt er að efla þekkingu og færni ljósmæðra hérlendis í geðheilsuvernd á meðgöngu með símenntun og þjálfun. \nLykilorð: skimun, geðheilsuvandi, ljósmæður, meðgönguvernd, hindranir, þekking
Source: Skemman
Author: Arndís Mogensen
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019602342
Cites: 106
Cited by:
Related to: 10