Work

Hönnunarhugsun utan hefðbundins hönnunarumhverfis : áskoranir og kostir innleiðingar hönnunarhugsunar á Íslandi

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á Íslandi í dag hefur áhugi á notendamiðlægri hönnun aukist á síðastliðnum \nárum. Í þessari ritgerð er rannsakað hvað felst í því að innleiða aðferðafræðina \n„hönnunarhugsun“ (e. design thinking) í stofnunum og fyrirtækjum sem \nskilgreinast utan hefðbundis hönnunargeira. Einnig er skoðað hvað skipar \nhönnuðarhugsuð og hvaða eignleika þarf að hafa í huga við samsetningu teyma. \nRannsóknin er eigndleg rannsókn framkvæmd með viðtölum við þrjá Íslendinga \nsem eiga það sameiginlegt að nota hönnunarhugsun sem leiðandi aðferðfræði á \nsínum starfsvettvangi utan hönnunargeirans. Átt er við gagnrýndar annmarkanir \naðferðfræðarinnar, sérstaklega hvað varðar mælanleika ávinnings, og þær \nbornar saman við niðurstöður. Niðurstöður rannsóknar sýndu að til þess að \ninnleiða hönnunarhugsun þarf að gefa sér tíma, bæði til að læra aðferðafræðina \nsjálfa en einnig tíma til að aðlaga hana inn í vinnustaðarmenninguna. Það þarf að \nskipa teymi hönnuðarhugsuða, en það eru einstaklingar sem búa yfir sérstakri \nhæfni til að beita heildstæðri hugsun, hafa ríka samkennd, eru bjartsýn, opin fyrir \ntilraunamennsku og geta unnið í samvinnu við aðra (Tim Brown, 2008). \nHönnuðarhugsuðir eru því ekki endilega einstaklingar sem eru menntaðir \nhönnuðir, heldur eru þeir einstaklingar með opinn hug. Höfundur varpar einnig \nfram þeirri kenningu að áreiðanlegur mælanleiki sé jafnvel óþarfi í \nhönnunarhugsun, þar sem aðferðafræðin er byggð á fram-og-til-baka ferli sem \nsér til þess að ávallt sé rými til endurbóta. Þessar niðurstöður eru mikilvægar til \nað mæta ört vaxandi áhuga á aðferðafræðinni og að geta veitt innsýn í hvernig \nferli innleiðingar getur verið og hvað þarf að hafa í huga við þá innleiðingu.
Source: Skemman
Author: Birgitta Rúnarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019609482
Cites: 25
Cited by:
Related to: 10