Work

Heilsa, félagsauður og búseta: Fjölstigaprófun á samhengisáhrifum félagsauðs í hverfi á sjálfmetna heilsu

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi leggur mat á samhengis- og einstaklingsáhrif félagsauðs á heilsu, þar sem félagsauður er skilgreindur sem félagslegt traust. Notast er við fjölstiga lógistískt aðhvarfslíkan til að meta líkindahlutföll á sjálfmetna heilsu 4.547 einstaklinga í 46 hverfum í þriðju framkvæmd spurningalistarannsóknarinnar Heilsa og líðan Íslendinga frá Embætti landlæknis árið 2012. Er stjórnað var fyrir lýðbreytum, félags- og efnahagslegri stöðu, einstaklingsbundnum heilsuáhrifaþáttum og félagsauði í hverfi leiddu líkön í ljós stígandi samband milli félagsauðs í hverfi og sjálfmetinnar heilsu. Þegar tekið var tölfræðilegt tillit til félagsauðs á einstaklingsstiginu urðu áhrif félagsauðs í hverfi hins vegar ómarktæk. \nRannsóknin rennir stoðum undir tilgátur um að félagsauður í hverfi hafi ekki samhengisáhrif í þjóðfélögum með sterka velferðastefnu sem þjóðskipulag. Hins vegar reynast áhrifin á einstaklingsstiginu stöðug, burtséð frá þjóðfélagsskipulagi.
Source: Skemman
Author: Helgi Eiríkur Eyjólfsson 1981
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019633879
Cites: 34
Cited by:
Related to: 10