Work

Heilsusamlegir ávaxtadrykkir með bætibakteríum og trefjum. Vöruþróun

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Vinsældir markfæðis (functional food) hafa verið að aukast með hverju ári á heimsvísu og eru matvæli og drykkir með bætibakteríum (probiotics) með þeim vinsælustu. Á síðustu árum hafa matvælafyrirtæki víða um heim hafið framleiðslu á drykkjum með bætibakteríum sem eru án mjólkur en á Íslandi er enga slíka framleiðslu að finna og einungis er hægt að fá mjólkurvörur með bætibakteríum enn sem komið er. Fjölmargar rannsóknir hafa verið birtar síðustu árin sem sýna gagnsemi bætibaktería á heilsu manna. Með nýrri tækni hafa fyrirtæki náð að þróa sterkari stofna bætibaktería sem lifa betur í öðrum matvælum en mjólkurvörum. Markmið verkefnisins var að þróa frískandi og heilsusamlega drykki með bætibakteríum og trefjum sem hentar öllum aldurshópum, fyrir þá sem vilja bæta almenna heilsu sína og einnig fyrir þá sem ekki vilja eða ekki geta neytt mjólkurvara. Einungis er hægt að fá mjólkurvörur með bætibakteríum á Íslandi enn sem komið er. Tilgangur þess að bæta við trefjum er tvíþættur; annars vegar fyrir betra jafnvægi í meltingarvegi og hins vegar sem fæði fyrir bætibakteríurnar í meltingarveginum og í drykknum en það er talið að trefjar muni gefa þeim aukinn stöðugleika. \nVöruþróun á drykkjum var gerð með tilliti til skynrænna eiginleika og lifun Bifidobacterium lactis HNO19 og Lactobacillus casei 431® þar sem unnið var með mismunandi magn hráefna til að besta drykkina. Einnig voru gerðar tilraunir með tilbúna safa frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Ræktun var gerð á mjólkursýrugerlum og ger- og myglusveppum ásamt mælingum á pH-gildi, brix og LAB. Vörumat var framkvæmt þar sem skynrænum eiginleikum vörunnar var lýst og gerður samanburður á drykkjum með og án bætibaktería. Neytendakönnun var gerð til að kanna eftirfarandi atriði: geðjun á drykkjunum, viðhorf, þekkingu og bakgrunn þátttakenda. \nNiðurstöður sýna að hægt er að setja bætibakteríur í ýmsar tegundir af drykkjum. Við tilraunir kom í ljós að bætibakteríur eru flóknar lífverur og eru margir þættir sem geta haft áhrif á lifun þeirra. Það sem virðast skipta mestu máli eru pH-gildi, sykurinnihald og önnur efni t.d. fenólar. Með því að bæta þeim trefjum sem notaðir voru við tilraunir virtust ekki hjálpa bætibakteríunum að lifa í söfunum, frekari rannsókna er þörf. \nVið vörumat kom fram að skýjaðir drykkir henta betur en tærir og niðurstöður úr neytendakönnun sýndu að þáttakendur myndu vilja kaupa safa með trefjum og bætibakteríum. \nÉg tel að það sé markaður fyrir safa með bætibakteríum á Íslandi. Íslendingar eru nýjungagjarnir ásamt því að aukin vitund um mikilvægi mataræðis og heilbrigt líferni almennt hefur aukist síðustu árin. Gagnsemi bætibaktería hefur lengi verið þekkt en síðustu áratugi hefur komið í ljós hversu mikil, víðtæk og mikilvæg áhrif þær geta haft á líkama mannsins í heild sinni.
Source: Skemman
Author: Berglind Heiður Andrésdóttir 1980
Language: Icelandic
Subfield: Food Science
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7019672419
Cites: 92
Cited by:
Related to: 10